Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Síða 21
RÓÐUKROSSINN f PANNARDAL
27
útmálun mannlegrar þjáningar frelsarans á krossi hefur listamann-
inum tekist það sem hann hefur ætlað sér, en það er það að sérhver
sá, sem stendur frammi fyrir Kristsmyndinni, fyllist lotningu, enda
hefur vafalaust margur vegfarandi í Fannardal á liðnum öldum gert
bæn sína frammi fyi’ir henni, hvort sem hann kom vegmóður af fjalli
yfir Fönn eða átti þá leið fyrir höndum.
Nú er ekki að ófyrirsynju þó að einhverjum detti í hug að þessi
kross hafi staðið úti á víðavangi eins og krossinn margumtalaði í
Njarðvíkurskriðum. Ekkert er þó sem bendir til þess að hann hafi
verið á berangri og um hann hafi gnauðað regn og vindar. Það verður
því að hafa fyrir satt að hann hafi alltaf verið í húsum inni.
Stíll og aldur.
Óhjákvæmilegt er að fara hér fáeinum orðum um stöðu Fannar-
dalskrossins í stílsögu íslenskra róðukrossa.40
Friðþægingardauði Krists á krossi hefur frá öndverðu verið kjarn-
inn í trúarboðskap kristinna manna. Krossmarkið varð því snemma
heilagt tákn en lengi voru um það skiptar skoðanir meðal forvígis-
manna kristninnar hvort rétt væri að gera myndir af Kristi á kross-
inum, enda hryllti menn lengi við þessu grimmilega píslartóli Róm-
verja. Talið er að róðukrossar verði ekki algengir fyrr en á 8. öld þó
að þeir hafi tíðkast nokkuð á 6. og 7. öld.
Kristsmyndin er ekki hafin yfir tísku fremur en önnur fyrirbæri
mannlegs samfélags. Fornum trúboðum á Norðurlöndum virðist hafa
verið gjarnt að hugsa sér Krist sem voldugan suðrænan konung,
raman konung Róms hallar, eins og skáldið Eilífur Goðrúnarson yrkir
um á mörkum heiðni og kristni.47 Af líkum toga er það spunnið, er
Njála lætur Steinunni, hina heiðnu skáldkonu, hugsa sér að Þór bjóði
Kristi á hólm.48
Um 1000 eru allsráðandi í kristninni hinir svonefndu rómönsku
róðukrossar. Um gerð þeirra fer dr. Kristján Eldjárn þessum orðum:
48 Hér verður einkum stuðst við ritgerð Kristjáns Eldjárns: Ufsakrossinn í
Gengið á reka, Akureyri 1948, bls. 148-—183, en einnig má benda á:
Matthías Þórðarson: Róðukrossar með rómanskri gerð í Árbók Hins íslenska
fornleifafélags 1914, bls. 30—37. Sjá ennfremur Krucifix í Kulturhistorisk
leksikon for nordisk middelalder, IX. bindi, Reykjavík 1964, dálkar 456—463.
47 Den norsk-islandske skjaldedigtning I A, Kobenhavn og Kristiania 1912.
bls. 152.
48 Brennu-Njáls saga, 102, kap., Isl. fornrit XII, Reykjavík 1954, bls. 265.