Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 26
32 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS alin í Fannardal eins og betur greinir síðar. Einnig verður því ekki neitað að sum atriði í frásögn dr. Björns hafa verið gagnrýnd. Ekki verður mikið upp úr því lagt þó að næstum í sömu andrá sé talað um fjarðarbotn og Krossfjöru, sem í reynd er sitt hvað, eða talið sé að tröllskessurnar, þótt hátt hafi hreykt sér, hefðu ekki getað séð út í Krossfjöru sem liggur undir háum sjávarbökkum. Það eru of miklar kröfur til raunsæis í þjóðsögu. 1 mesta lagi gæti þetta atriði bent til þess að tengslin í sögunni milli Fannardalskrossins og Krossfjörunnar væru ung og sögugerð dr. Björns sýndi með setn- ingunni: „Fiskur er rekinn í f jarðarbotn," sem í sjálfu sér er fornleg, að hið landfræðilega ósamræmi stafaði af þessum ungu tengslum. Hitt er þyngra á metunum að sögugerð dr. Björns hefur verið fundið það til foráttu að þar væru miklaðar frásögur um átrúnað á krossinn og heitgjafir til hans. En um það atriði eru þó svo margar gamlar og skilorðar heimildir að telja verður að sú gagnrýni missi marks, jafnvel þótt hún sé runnin frá þeim sem vel áttu til að þekkja eins og rakið verður hér síðar. „Húsbændur og heimilisfólk hafa .... jafnvel trúað því að hann [þ. e. krossinn] væri heilagur og hlífiskjöldur Fannardals“, kemst dr. Björn að orði í sögu sinni. Orðið hlífiskjöldur er eina orðið í sögunni sem ekki getur talist hversdagslegt í þessu samhengi og leiðir jafnvel hugann að fomu máli. Dr. Björn var þó ekki orðinn lærður maður í fornum fræðum þegar hér var komið sögu, heldur um það bil að ljúka stúdentsprófi eins og fyrr greinir. 1 fornum bók- menntum kemur orðið hlífiskjöldur alloft fyrir en í elstu ritum virðist vera algengari orðmyndin hlífskjöldur. Tengsl þessa orðs við orðið kross er einmitt að finna í einu hinu elsta riti íslensku, safni prédikana í handriti frá því um 1200, varðveittu í Stokkhólmi (Sthm. Perg. 4:o nr. 15), sem nefnt er íslenzka hómilíubókin. Þar segir svo í hómilíunni De sancta cruce (Um helgan kross): „Fyr krossi Drottins flýja djöflar .... Heilagur kross er hlífskjöldur við meinum en hjálp í farsællegum hlutum ..............“55 Ekld er fyrir BB Homiliu-bók. Isldndska Homilier, utgifna af Dr. Theodor Wisén, Lund 1872, bls. 39. Þessi sama hómilía er einnig í norsku hómilíubókinni, en þar er orðmyndin lífskjgldr (hdr. lifscioldr) að norskum hætti, Gammel norsk homiliebog, útg. af C. R. Unger, Christiania 1864, bls. 142. — Sbr. Kristján Eldjárn: Gengið á reka, bls. 148. — 1 fornu máli og nýju er algengt orð- takið að hafa e-n að hlífiskildi og í nútíðarmáli að halda hlífiskildi yfir e-m. Sjá Halldór Halldórsson: íslenzkt orðtakasafn I, bls. 246. — Texti hómilíu- bókanna hefur varla verið þekktur hér á landi á síðari öldum nema úr þessum tveimur útgáfum sem hér hafa verið nefndar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.