Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 27

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 27
RÓÐUKROSSINN f FANNARDAL 33 það að synja að dr. Björn hafi á skólaárum sínum kynnst hinum fornu hómilíum í bókasafni lærða skólans eða Landsbókasafninu, en einnig má vera að hugleiðingar um helgan kross, sem hómilían telur einnig „sigurmark guðs en lausnarmark manna“, hafi kallað fram áþekkt orðalag tveggja manna sem sjö aldir skildu að. Eitt er það orð í þessari sögu, annað en hlífiskjöldur, sem ástæða er til að staldra við en það er orðið fiskur í setningunni: „Fiskur er rekinn í f jarðarbotn". Auðskilið er að tröllskessurnar hliðri sér hjá að taka sér í munn orðið kross, en ekki liggur beint við að nota orðið fiskur þess í stað þó að fisk reki óneitanlega stundum á fjörur, bæði eigin- legan fisk og stórfisk. Ekki verður séð að orðið fiskur geti haft nein þau merkingartengsl við orðið kross, sem geri það eðlilegt í þessu sambandi. Að vísu er fiskur fornt tákn Krists (sjá Kristus- symboler í Kulturhistorisk leksikon, IX. bindi, Reykjavík 1964, dálk- ar 387—391), en allra síst hæfir slíkt kirkjulegt táknmál tröllkonum. Hins vegar leggja aðrar gerðir sögunnai', sem síðar verða raktar, skessunni orðið fauskur í munn. Verður það að teljast hæfilega niðr- andi orð um hinn helga kross í munni illvættar. Ekki skal þvertekið fyrir það að fiskur í sögu dr. Björns kunni að vera prentvilla fyrir fauskur. Sagnasafnið Huld kom út í sex heftum á árunum 1890—1898 og varð mjög vinsælt, enda stóðu að því fimm mikilhæfir menn, þeir Hannes Þorsteinsson, Jón Þorkelsson, Ólafur Davíðsson, Pálmi Pálsson og Valdimar Ásmundsson. Það var endurprentað í tveimur bindum í Reykjavík á árunum 1935 og 1936. Kom þá enn í ljós að það átti vinsældum að fagna en frumútgáfan er aðeins í fárra höndum. Meðal yngri kynslóðarinnar hefur þó sagan um krossinn í Fannardal orðið kunnust vegna þess að Björn Guðfinnsson tók hana upp í kennslubók sína, Islenzka málfræði, sem kom fyrst út 1937. Var sagan prentuð í fjórum fyrstu útgáfum þeirrar kennslubókar. Áður hafði Björn gefið út kennslubók í málfræði (Reykjavík 1935) er nefnist Islenzka I, en þar var sagan eklvi. 4. útgáfa Islenzkrar mál- fræði kom út 1946 en virðist hafa verið prentuð óbreytt fram til ársins 1958 er 5. útgáfa kemur út, endurskoðuð af Eiríki Hreini Finnboga- syni. I hinni endurskoðuðu útgáfu Eiríks Hreins er þessari sögu ásamt mörgum öðrum sögum og sögnum sleppt og hefur hún ekki verið tekin aftur upp í málfræðibækur, enda er vandséð að hún sé sérstaklega vel fallin til greiningar fornafna, eins og til er ætlast í fjórum fyrstu útgáfunum. Rétt er einnig að geta þess að þessi saga Björns Bjarnasonar er 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.