Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Side 58
64
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
í túninu, um 20 m frá þeim stað þar sem rústirnar höfðu verið en
varla er um annað að ræða en að spýtan hafi verið í húsunum og
farið í moldina er húsin voru jöfnuð út. Síðan hefur hún að líkindum
borist til með jarðýtunni, enda ber hún þess merki að hafa orðið
fyrir nokkru hnjaski á bakhlið nýlega. — Ekkert fannst meira af
fjölinni eða öðrum athyglisverðum spýtum þrátt fyrir gaumgæfilega
leit á staðnum, sem reyndar var gerð allmiklu síðar.
Ingibjörg Dagsdóttir fluttist með foreldrum sínum að Gaulverja-
bæ árið 1920 og man vel eftir þessum húsum, enda voru þau notuð sem
hesthús í tíð föður hennar, Dags Brynjúlfssonar. Ekki veit hún til
að nokkur hafi tekið eftir þessari fjöl eða öðrum slíkum neins staðar
í húsunum, enda voru þau ekki björt og því gat slíkt auðveldlega
leynst, ekki síst ef útskurðurinn hefur snúið út. Virðist enda svo
sem framhlið fjalarinnar hafi einhvern tíma snúið að torfi því að
þar er hún nokkuð fúin og er reyndar líklegast að fjölin hafi verið
í árefti síðast eins og aðrar þær fornar fjalir sem safnið hefur fengið.
Reyndar er einnig hugsanlegt að hún hafi síðast verið í timburþili
milli hesthússins og hlöðu sem stóð við það.
Fjölin hefur verið stærri í upphafi og hefur brotnað af báðum
hliðum hennar en svo virðist þó sem meginhlutinn hafi varðveist.
Fjölin er úr furu, að öllum líkindum skógarfuru, samkvæmt grein-
ingu Haralds Ágústssonar viðarfræðings. Mesta lengd hennar er
68,3 sm og mesta breidd 17,9 sm. Þykktin er yfirleitt um 2,7 sm en
breiðari endinn er talsvert þykkari, eða 3,6 sm.
Ekki virðist fjölin eða sá partur, sem nú er til af henni, hafa
styst til endanna en breiðari endinn sýnist helst hafa snúið niður
eins og sýnt er á myndunum. I neðri endann er skorin grunn U-laga
kíling vinstra megin en hægra megin hefur verið brotið og sagað af
endanum. Hægri brún fjalarinnar er brotin og flöskuð en neðantil
virðist vera upphaflegur skáhöggvinn flötur. Að ofan hefur hún
verið bogsveigð fyrir endann og þar er skorin svipuð kíling í endann
og að neðan. Vinstri brún fjalarinnar er brotsár að meginhluta og
hefur þar klofnað frá allvænt stykki en nokkru ofan við miðju er
hringlaga úrtak, greinilega upphaflegt, en síðan hefur klofnað upp
úr því. Um það bil 9 sm ofanfrá er þar sagarfar eða far eftir
annað smíðatól í fjölina, að líkindum upphaflegt. Á þessum kafla
er fjölin mun mjórri en neðst, um 8,5—9,2 sm, en form fjalarinnar
kemur greinilega fram á myndunum.