Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Blaðsíða 94
100
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
1703—1704 og/eða 1704—1705 unnið úr manntalinu með aðstoð
Snorra og að í hans fórum hafi sú útskrift verið er sonur hans síðar
afritaði handa Finni Jónssyni.
Auk þessarar heimildar um útkomu úr manntalinu 1703 eru til
tvær aðrar sem óbeint benda til þess að Árna Magnússyni hafi verið
kunnugt um hana og að hann hafi jafnframt staðið að dánartali sem
enn færri sögur hafa farið af en af manntalinu. Meðan á jarðabókar-
starfinu stóð barst stórabóla <til landsins eða í júní 1707 og stóð aðal-
faraldurinn til vors 1709; þar af kemur langmesta mannfallið á fyrra
árið því þá er sóttin búin að ljúka sér af í öllum þéttbýlustu sveitum
landsins. Það má fara nærri um að þessi mikla drepsótt skapaði
jarðabókai*mönnunum mikinn vanda. Auk þess að hindra að mestu
jarðamatið fyrra sumarið þurfti að meta þau nýju viðhorf sem
sköpuðust vegna hinna mörgu nýju eyðibýla og hruns á jarðarafgjöld-
um. Nokkrar samtíma heimildir geta um heildarfjölda þeirra er lét-
ust í bólunni, en flestar tölurnar bera það með sér að vera að ein-
hverju leyti áætlaðar, auk þess sem ekki kemur skýrt fram við hvaða
tímabil sé átt né hvort eingöngu sé átt við mannfall úr bólu eða
hvort átt sé við heildartölu dáinna á tímanum sem bólan gekk. Bestu
heimildir segja 18000 hafa látist í bólunni og Jón Þorkelsson Skál-
holtsrektor tekur af allan vafa um það hvað felist í þeirri tölu þar
sem hann segir: „De (þ. e. Bornekopper) som grasserede fra 1707—-
1709, inclusive, meenes at have dræbt henved 18000 Mennisker i
heele landet. Men det var ikke alleene Bornekopper, men ogsaa en
Art af en Contagion og Flekfeber tillige“ (Herr Johann Anderson,
hans Efterretning om Island ... Kph. 1748, bls. 304). Með „Contagion
og Flekfeber“ á Jón sennilega við „landfarsótt með þungu kvefi“
sem Fitjaannáll segir að gengið hafi 1707. Ein heimildanna birtir
þó tölu yfir látna, sem virðist byggjast á talningu, auk þess sem hún
á við tiltekið tímabil og að tilgreind er heimild en það er Hvamms-
annáll. Þar segir 1707 um bólusóttina: „og varð eitt hræðilegt mann-
fall, svo á eptirkomandi sumri sagði secretarius Árni Magnússon,
sem hann vissi, þá hefðu hér dáið 16087 menn, en hann hafði ei til
vitað eður með skilum frétt úr Austfjörðum." Höfundur annálsins,
Þórður prófastur Þórðarson, fékk Hvamm í Hvammssveit 1721 eftir
lát Magnúsar prófasts Magnússonar (d. 1720) en hjá þeim bróður
sínum dvaldi Árni oft á sumrum meðan á jarðabókarstarfinu stóð;
er líklegt að heimilisfólk á bænum hafi frætt Þórð um ofangreind
ummæli Árna. 1 bréfi sem Árni ritar rentukammerinu, dags. Kh.
20. júní 1709, segir: „Som nu laugmanden og samme person (þ. e.