Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Side 107

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Side 107
ÖNDVEGISSÚLUR í EYJAFIRÐI 113 í Borgund. Hugsum okkur einn innstaf burtu og honum tyllt upp við lágreistan húsgafl. Okkur myndi þá sýnast hann mjókka upp eftir „blive smallere og smallere op ad“ ef við sæjum hann frá hlið. Hins- vegar heldur stafurinn breidd sinni sé horft á hann að framan. Engin viðhlítandi skýring hefur verið gefin á stórkarlamyndum stafahöfða norskra miðaldakirkna. Roar Hauglid, sem mest hefur skrifað um norskar stafkirkjur, vísar reyndar á bug fyrri kenning- um um að hér séu komin hin fornu norrænu goð.15 Látum það liggja milli hluta. Hins vegar er það víst að flokka má stafahöfuðsmyndirn- ar í þrjá hópa. 1 fyrsta hóp eru dýrahöfuð, í öðrum kappahöfuð, þ. e. a. s. útskorin karlmannshöfuð, með nokkurn veginn eðlilega ásýnd, og að lokum eru einskonar höfuð fífla, skrumskæld eða skælbrosandi með tunguna lafandi út úr sér. Lýsing Eggerts gæti vel átt við hóp númer tvö. Sjá t. d. 7. mynd af stafahöfði frá Hurumkirkju í Valdres og 8. mynd frá Heggekirkju í sömu sveit. IV Nú víkur sögunni annað. í Þjóðminjasafni Islands liggja gögn þau er Sigurður Guðmundsson lét eftir sig, m. a. fjöldi skissubóka. I einni þeirra er að finna riss með athugagrein sem vekja mun áhuga okkar (9. mynd). Þetta er teikning af húsgafli, reyndar tveim- ur. Sá efri snertir þetta mál. Við hlið hans annars vegar er teiknuð uppundin súla með keilulöguðum hnappi efst, en hinsvegar er skrifað skýrum stöfum „Bæardyr á Stórhamri.“ Ivið neðar á síðunni sama megin er önnur áletrun: „S. Einar í Saurbæ sagði mér ár 1856“. Við neðri gaflinn stendur orðið „kirkjudir“.1G Þetta er séra Einar Thor- lacius sem prestur var í Saurbæ á árunum 1822 til 1866. Hann lést þar árið 1870. Nú vill svo vel til að í bók Finns Sigmundssonar fyrrv. landsbókavarðar „Þeir segja margt í sendibréfum" er bréf frá séra Einari til Finns Magnússonar þar sem hann lýsir súlum Sigurðar: „Öndvegissúlur hafa allt til þess í vor staðið sín hvoru megin upp með karldyrum á Stórahamri í Eyjafirði. Þær voru sívalar, eins og vindreim skornar, með knappi ofaná. Ég ríð þar aldrei svo um hlaðið, að ég ekki líti til þeirra með einsslags virðingu“. Bréfið er ritað 12. júní 1828.17 Ekki er hægt að skilja orð séra Einars á annan hátt en að „öndvegissúlurnar“ hafi verið teknar niður árið 1828. Því miður láðist Eggert Ólafssyni að geta um nöfn bæja þeirra í Eyjafirði þar sem þeim ferðafélögum voru sýndir hinir sjaldgæfu forngripir. Er þá ekki rétt að spyrja: Er Stórhamar annar þeirra? Ennfremur: 8
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.