Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Side 109
ÖNDVEGISSÚLUR í EYJAFIRÐI
115
Getur það hugsast að vindreimar þær, sem séra Einar kallar svo, séu
sömu hlutirnir og Eggert lýsti? Mér virðist seinni spurningunni fljót-
svarað. Það er ekki hægt að sjá neitt samhengi með öndvegissúlum
þeirra Eggerts og Bjarna annars vegar og súlum séra Einars í Saur-
bæ hinsvegar. Telja verður lýsingu Einars ásamt teikningu Sigurðar
óyggjandi í öllum aðalatriðum. Ég sé heldur enga ástæðu til að ætla
Eggert svo glámskyggnan að til mála komi að hann hafi haft í huga
vindreimarnar á Stórhamri þegar hann ritaði sinn texta. Hvernig má
þetta vera? Áður en leitað er svara við því er rétt að svipast um í
Fram-Eyjafirði á 17. og 18. öld, að svo miklu leyti sem það er hægt,
og athuga hvað við finnum af fornum kirkjum.
V
Ekki þarf lengi að leita í vísitasíum til þess að finna margar og
allítarlegar lýsingar á fornum kirkjum. Það eru þó einkum hinar
stærri kirkj ur sem við erum á höttunum eftir, nánar tiltekið útbrota-
kirkjur af timbri, hinar þrískipuðu basilíkur í ætt við norsku staf-
kirkjuna. Fyrir því eru þó takmörk hversu langt aftur hægt er að
fara. Meginreglan er sú að fyrir miðja 17. öld þýðir lítið að leita
eftir handbærum upplýsingum. Magnús Már Lárusson telur að um
aldamótin 1700 standi u. þ. b. 30 timburkirkjur á íslandi.18 Að vísu
eru þær ekki allar með útbrotasmíð.
Eftir lauslega athugun, sem ég hef gert, má þó ætla að þær séu
í meirihluta. Sú sveit, sem flestar hefur innan sinna marka, er Eyja-
fjörður. Fram-Eyjafjörður er eitt þurrviðrasamasta hérað landsins,
ásamt Fljótsdal og hluta Skagafjarðar, enda eru þaðan komin flest
forn tréskurðarverk. I lok 17. aldar eru útbrotakirkjur af timbri í
Laufási, Munkaþverá, Möðruvöllum í Hörgárdal og Möðruvöllum í
Eyjafirði, Grund og Hrafnagili eða alls sex talsins. Fjórar þeirra
þ. e. a. s. kirkjurnar á Möðruvöllum báðum, Hrafnagili og Laufási
eru með kór og forkirkju undir minna formi en framkirkjan, en í
tveimur þeirra, á Grund og Munkaþverá, er kór og kirkja undir
sama þaki, og þær eru forkirkj ulausar. Hægt er að gera sér allgóða
grein fyrir uppbyggingu þeirra, og mál eru gefin á kirkjunum á
Munkaþverá og í Laufási. 1 öllum þessum kirkjum er innstöpla getið
í vísitasíum. Flest bendir og til þess að þeir hafi verið sívalir. Það
yrði of langt mál að færa sönnur á það nú en ég vil geta tvenns: Orðið
stöpull hefur næstum algjöra samfylgd með útbrotakirkjum í skoðun-
argerðum, orðið stólpi eða stolpi kemur einstöku sinnum fyrir. Nú