Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 154
160
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Þjóðminjavörður rannsakaði hinn 25. júlí beinagrind sem komið
hafði í ljós á Hellu, rétt hjá þar sem bærinn Gaddstaðir stóð fyrrum.
Þetta var heilleg beinagrind sem kom upp við jarðýtuvinnu; hafði
líkið verið lagt á bakið en gripir fundust engir og virðist hér ekki
vera um heiðið kuml að ræða. 1 ferðinni var einnig kannaður hinn
stóri og mikli hellir að Hellum í Landsveit.
28. ágúst fór þjóðminjavörður ásamt dr. Sigurði Þórarinssyni og
nokkrum Akureyringum að Hraunþúfuklaustri í Vesturdal í Skaga-
firði til að kanna þann stað og einkum til að fá úr því skorið hvenær
þar hefur verið byggð, en þarna eru miklar rústir sem talsvert hefur
verið skrifað um og menn jafnvel talið að verið hafi þar klaustur í
fyrndinni. Stóð athugunin í tvo daga og voru grafnar prófgryfjur
í nokkrar rústir en um eiginlega rannsókn var ekki að ræða. Það
virðist öruggt að staður þessi hefur verið byggður fyrir 1104 því að
öskulagið frá Heklu það ár sást greinilega yfir gólfum. Þar fannst á
einum stað greinilegur langeldur og virðist helst sem þarna hafi
verið smábýli, afdalabær, snemma á miðöldum, en líklega hefur
byggð ekki haldist lengi þar. Heldur er ósennilegt að þarna hafi
nokkru sinni verið klausturlifnaður og er því skýringar á nafni stað-
arins að leita í öðru sambandi.
13. september fór þjóðminjavörður ásamt Ágúst Böðvarssyni for-
stöðumanni Landmælinga Islands að Hrafnseyri við Arnarfjörð til
að athuga gamlar tóttir á eyrinni niður frá bænum. Þessar rústir
eru mjög sokknar í jörð og óljósar, en smávegis var grafið í þær
þrátt fyrir óhagstætt veður. Virðist hér vera um fornar rústir að
ræða því að í langhúsinu, sem greinilegast er, fannst langeldur, skýr
og greinilegur, í auðþekktu kolagólfi, og set virtust vera til beggja
hliða. Þar fannst einnig smáflís af eldtinnu. Tóttir þessar eru rétt
fyrir vestan Grelutóttir sem nú er búið að slétta en sagnir voru um
að væru rústir af bæ Grélaðar, konu Áns landnámsmanns. Rústir
þessar voru síðan friðlýstar.
FerSir safnmanna.
Ferðir voru með svipuðu sniði og áður, skemmri ferðir á hina
ýmsu staði sem yfirlíta þarf árlega svo sem Stöng í Þjórsárdal og
er ekki ástæða til að geta þeirra sérstaklega.
í janúar fór þjóðminjavörður ásamt Bjarna Ólafssyni trésmíða-
meistara að Möðruvöllum í Eyjafirði og könnuðu þeir kirkjuna
gömlu sem fauk af grunni í desember árið áður. Var lagt að heima-