Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 3
FORNIR HÚSAVIÐIR í HÓLUM
7
norður til að mæla bæinn upp, ljósmynda og skrásetja athuganir.
Þetta mun hafa verið í fyrstu viku ágústmánaðar. Verkið reyndist
umfangsmeira en ég hugði í fyrstu, enda einn að vinnu. Mér tókst
þó að ljúka gerð grunnmyndar, teikna lang- og þversnið af skála,
taka strikamót og ljósmynda. Skömmu seinna gerðist ég skólastjóri
og hafði öðrum hnöppum að hneppa og verkið fór í salt. Rúmlega tíu
árum síðar var þráðurinn tekinn upp að nýju. Sumarið 1977 dvaldist
ég tvívegis í Hólum, dagana 4.—6. júlí og 11.—12. september við
frekari mælingar og athuganir, gerði lang- og þversnið af skemmu,
sérmældi ýmsar fornar húsaviðaleifar og ljósmyndaði frekara. Enn
var ég í Hólum seinnipart síðastliðins sumars til frekari athugana.
Mér varð fljótt ljóst að ég gat ekki að svo komnu máli gert öllum
húsum þau skil sem ég hefði kosið. Hinsvegar taldi ég mikilvægt að
koma á framfæri í þessum áfanga niðurstöðum af rannsóknum á hin-
um fornu viðum er bærinn geymir, enda er það markmið þessarar
ritsmíðar framar öllu.
Nauðsynlegt er og að taka fram að aðstæður á staðnum eru að
ýmsu leyti erfiðar til gagngerðrar skoðunar. Bærinn er enn brúkað-
ur sem geymsluhús fyrir tól og tygi, amboð og ílát heimamanna. Af
því leiðir að oft er erfitt að komast að hinum einstöku byggingar-
hlutum. Ef vel ætti að vera þyrfti hreinlega að taka húsin ofan til
þess að komast að nauðsynlegri vitneskju um ýmsar samsetningar
og smærri smíð, sem við núverandi aðstæður er hulin sjónum. Vit-
anlega ber að stefna að því þegar tími og tækifæri gefst. Öll sagan
um fornviðasafnið í Hólum er því ekki enn sögð.
Húsaskipcm.
Hólar liggja framarlega í Eyjafjarðardal skammt norðan undir
framhlaupshólum sem þar fylla dalinn um þvert og bærinn tekur
augljóslega nafn af. 1 Hólum hefur löngum staðið kirkja og stendur
enn, bændakirkja.
Torfbærinn gamli snýr fjórum þilstöfnum mót vestri (1., 2. og 3.
uiynd). Syðst er skáli, þá bæjardyr, stofa og nyrst skemma. Úr innri
bæjardyrum er annarsvegar gengið til stofu en hinsvegar til ganga.
Fremst í göngum eru dyr til skála, en innar er eldhús á aðra hönd
en búr á hina. 1 raun eru eldhús og búr í einni tóft og göngin milli
þeirra mörkuð þiljum. Úr eldhúsi eru dyr til norðurs í fjós. Áður
voru göngin lengri og náðu til baðstofu, sem var aftast húsa, en er
nú horfin. Suður af sundinu milli skála og búrs er veggspotti, leifar