Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 9
FORNIR IÍIÍSAVIDIR í HÓLUM
11
það fer eftir því hvar mælt er af ójöfnu moldargólfinu, undir bita
nálægt 2.06 og frá neðribrún bita í sperrutopp 2.08 m. Stafgólfalengd
er á bilinu 3.87 til 2.J0, en stafahæð 1.90 m. Á þessum málum sést að
bitalengd er næstum jöfn hæð hússins og neðri brún bita er helmingur
þeirra stærðar. Stafgólfalengdin virðist vera miðuð út frá þremur og
hálfri alin íslenskri, þ.e. 2.00 m og breidd milli stafa er nákvæmlega
sex álnir íslenskar, þ.e. 3.42 m. Lengd hússins er mjög nærri fjórtán
álnum og bitalengdin nálægt sjö. Grunnflötur skálans er þá sem næst
í hlutfallinu 1:2. Skálinn er f.jögur stafgólí (3., 4. og 6. mynd).
Laupur hússins er byggður upp með tíu stöfum, fimm hvoru megin
og standa á stoðarsteinum, tveim syllum, fimm bitum og sperrum,
fernum aðallangböndum auk viðbóta, reisifjöl og áfellum í hverju
stafgólfi. Öll er grind skálans læst saman með sérstökum hætti sem
nú skal lýst. Syllurnar eru ýmist felldar ofan í stafi í klofa eða á
stall, hök á bitahöfðum neðan læsa síðan stöfum og syllum föstum.
Sperrur eru að öllum líkindum sporaðar niður á bitaenda en blaðaðar
saman í toppinn og festar enn frekar með tveim trénöglum. 1
sperrukjálkann eru langböndin felld í spor. Einhverntíma hefur ver-
ið mænitróða í sæti á sperrutoppum, en hún er nú horfin og um-
merkin óljós. 1 reisifjölinni sjást göt í jafnri röð sem hljóta að vera
eftir nagla, sem í einhvern tíma hafa fest hana á langböndin. Ekki
er unnt við núverandi aðstæður að ganga að fullu úr skugga um
þetta atriði. Enn eru þar önnur víðari og umhverfis þau för eftir
breiðari langbönd en þau sem nú eru á skála. Reisifjölin er um
40 cm breið þar sem hún er breiðust. Áfellurnar sitja í sporum á
bitahöfðum ívið utar og ofar en sjálfar syllurnar og tekið úr fyrir
þeim í sperrutærnar. Á útstafninn er þiljað með greyptu standþili
líkt og í stofu og þar í þrjú gluggafög með tveim sexrúðugluggum
og einum fjögrarúðu, með tilheyrandi umgjörð, ásamt með vindskeið-
um. Bjórþil er efst á torfstafni með einum glugga, allt nýleg smíð
(9., 10.. 1L og 46. mynd).
Sperrur, langbönd, bitar, syllur og ein áfella eru sett striki sömu
gerðar, ósamhverfu, S-Iöguðu með kílskoru til beggja hliða og kalla
má barokkstrik. Á syllum er eitt strik á neðri brún þeirrar hliðar
er inn veit í húsið, á bitum á báðum hliðum við efri og neðri brúnir,
á sperrum neðst á hliðum og neðan á við brúnir, enn fremur neðan á
langböndum við báðar brúnir. Undantekning frá þessu er sú,
að innsti sperrukjálki norðanmegin er einungis strikaður einu striki
á neðri brún, þeirri sem inn veit, fremsti bitinn I er bara strikaður
á annarri hlið, þeirri sem út veit, og á bita V vantar eitt strik að