Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 55
FORNIR HÚSAVIÐIR í HÓLUM
57
hafi verið bak bekkjar. Ekki hefur þótt nauðsynlegt að skafa þar.
Grópfjölin í búri er endurgerð í þiljur þar, slétt skúruð og þynnri
en hinar. Nú er það tekið frarn í vísitasíu að torfkirkjur báðar séu
með strikuðu standþili. Sigurður biskup Stefánsson gefur beinlínis í
skyn að þil yngri kirkjunnar sé úr þeirri eldri: „gamalt þó gott og
sterklegt strikað þil“, segir hann. Mér finnst full ástæða til að gefa
þeirri hugmynd gaum að hér séu komnar gamlar kirkjuþilsleifar. Hitt
er öruggt að úr stafverkshúsi eru þær (29., 30., 35. og 40. mynd).
Víkjum okkur næst í búr og eldhús. Lítum fyrst á strikuðu sperr-
urnar og stafina tvo innst í búri, sem áreiðanlega eru gamlar sperrur.
Strax er hægt að fullyrða að hallinn á sperrunum hefur verið annar
en nú, því valda skammbitasporin. Einnig er hægt að fullyrða hvaða
halli hefur verið á þeim í upphafi. Hornið milli sporsins og sperru-
kjálkans er nákvæmlega 45°, þ.e.a.s. húsið hefur verið krossreist sem
kallað var eða 90° í þakkverk. Nú ætti að vera hægt að segja nokkuð
nákvæmlega til um live langir kjálkarnir hefðu verið í upphafi ef
við vissum hve hátt skammbitinn hefur setið. Sömuleiðis að ganga
úr skugga um hvort efri endi sperruleifanna er upprunalegur. Væri
þetta möguiegt vissum við einnig hversu breitt húsið hefur verið í upp-
hafi. Því miður er engin af þessum forsendum gefin. Reyna verður
samt (32.—34. og 37. mynd).
Fyrst skulum við athuga langbandasporin. Þau eru ýmist misdjúp
eða misbreið. Á sperrubútunum, sem nú eru innstu stafir í búri, eru
þau þó jafnstór og samstæð. Bilin milli þeirra eru 65 og 66 cm. Á
sperrunum innst í búri og þeim nyrðri í eldhúsi er búið að víkka tvö
langbandaspor. Fljótséð er þó að dýpri sporin eru jafnstór og sam-
stæð. Bilin á milli þeirra eru 66 cm annarsvegar og 67 cm hinsvegar.
Á syðri eldhússperrunum eru fleiri spor og þau víkkuð. Engu að síð-
ur sést við nánari aðgát hvaða spor eru upprunaleg. Bilin milli þeirra
eru líka 66 og 67 cm. Ég trúi því að þessar jöfnu stærðir gefi örugga
vísbendingu um hvað af sporunum sé upprunalegt og hvað seinni tíma
viðbót. Nú liggur alveg ljóst fyrir að sperruleggir þessir hafa verið
lengri, sverleiki þeirra gefur það í skyn og skammbitasporið á
syðri sperrum í eldhúsi. Ef það er rétt, þá hljóta langbandasporin að
hafa verið fleiri. Til eru tvö hús á Islandi gömul með fjórum lang-
böndum á hvorri hlið, Víðimýrarkirkja og bænliúsið í Gröf. I
þeirri fyrrnefndu eru langböndin felld hálf í sperrur, í þeirri síðar-
nefndu sem nemur þykkt langbandsins eða alveg eins og í Hólum. I
báðum húsunum eru skammbitar, en einungis í göflum, ýmist hátt
eða lágt í kjálkum. Iilutfallið á bilunum milli bita annarsvegar og