Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 78
80
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
(sem Jörundur biskup lét smíða) niður hrapaði (er Pétur biskup
var á Hólum) 230 ár, eptir því sem Flateyjarannáll greinir.20)
Árið 3627 var svo samkvæmt Skarðsárannál smíðaður stöpull og
kirkja að Hólum undir umsjón Halldóru Guðbrandsdóttur sem þá
var fyrir staðnum.30) Hefur Magnús Már Lárusson rakið heimildir
um stærð Hólakirkju fyrrum og er alveg ljóst að kirkjan á Hólum
hefur verið minnkuð frá því sem áður var við þetta áfall.31)
Árið 1628 virðist Flatatunga ekki lengur vera útbú stólsins held-
ur er hún talin leigujörð í heimaumboði og höfð á henni leigukúgildi
frá Hólum. Hið sama gildir um Bjarnastaðahlíð sem einnig hafði ver-
ið stólsbú í tíð Guðbrands.32) Þar sem áður voru útbú Hólastaðar
með ráðsmönnum eru nú komnar leigujarðir með leigukúgildum og
að sjálfsögðu leiguliðuro sem ábúendum.
Þannig virðast verða mikil umskipti um það bil samtímis þegar
29) Annálai 1400—1800 I. Keykjavík 1922—27, bls. 219. 1 „Annálum nokkrum
um þá biskupa sem verið hafa á íslandi" sem virðast vera eftir Hallgrím
Halldórsson á Víðimýri (um 1609-—1677), þeir hafa ekki verið prentaðir,
segir m.a. svo um Guðbrand Þorláksson:
Anno j627. Sofnadi hann i Gudi þann 20 Julij vmm Nönbil þad var A
fostudeige, þegar hann hafdi leiged Siukur og Mallýtell heil 3 Ar i krijng
og tiju vikur betur, hann fieck þann veikleika vmm vorid þridia dag
Huijta Sunnu. j624, enn Kijrkiann hrundi nidur vmm vetrinn epter Sama
Ar j624 þann 16 Novembris Sem var þridiu dagur vmm Morguninn þá
Biart var ordid i fiuk storme A Landnordann geiselega miklum, og Birti
og kirdi strax hun var fallenn. 220 Ara gómul, þad Sama Ar j627, sem
Gud kalladi þann göda Riskup þá giórdu tirknesker vijkingar (sender
Af dióflinum) störann Skada hier vid Jsland, med ráne og Elldsbrunum,
Mórdum, Manndrapum og Mannraunum sem Adrer Annalar þar glogg-
legar vmm tala, og mart bar þá vid störlegt þad Ar, þuj þá gieck og so
mikil Landfara Sott vmm Jsland, dö margur Madur.
Þesse gödi og loflege Biskup var Jardsettur þann 25 Julij Sem er á sialfa
Jacobsmessu sama Ar, Hann var Riskup 56 Ar. Ad Alldre 85 Ara gamall.
(Dómabók Jóns Sigurðssonar lögmanns, bl. 115v—116r. Skjalasafn Öxar-
árþings. Þjóðskjalasafn íslands.)
30) Annálar 1400—1800 I, bls. 227. Á bls. 221 við árið 1625 segir að kirkja og
kór hafi verið minnkuð við nýsmíði Hólakirkju.
31) Magnús M. Lárusson, Auðunn rauði og Hólakirkja, Árbók Hins íslenzka
fornleifafélags 1960. Um stærð og grunnteikningu Halldórukirkju sjá Dag-
blaðið Tímann 216. tbl. 3. nóvember, 1974. Ennfremur H. Finsen og E. Hiort,
Gamle Stenhuse i Island fra 1700-tallet. Kobenhavn 1977, bls. 28.
32) Þjóðskjalasafn, Bps, B VIII, 3. Ágæt grein er eftir Stefán Jónsson fræði-
mann á Höskuldsstöðum um Flatatungu og Bjarnastaðahlíð í Árbók hins ís-
lenzka fornleifafélags 1965-—6. Ekki eru þar þó öll atriði talin sem hér.