Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Page 90

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Page 90
92 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS hannsson bóndi á Hamarsheiði hringdi til Gísla Gestssonar fv. fyrsta safnvarðar og skýrði honum frá, að hann hefði þá á dögunum orðið var við mannabein þar inni í Hólaskógi, skammt innan við afréttar- girðinguna. Beinin hefðu verið á uppblásnum hraunhól og hefði hann tínt þau saman og raðað nokki-um steinum umhverfis. Gat hann þess, að þarna skammt frá væru aðfluttir steinar, leifar af einhverju mannvirki. Við Gísli Gestsson fórum á staðinn 19. júlí. Okkur gekk greiðlega að finna hann eftir lýsingu Erlends, en hann er skammt frá Sprengi- sandsleið hinni fornu, um 40 metrum suðaustur af annarri vörðu norðan afréttargirðingarinnar. Þar á hraunhólnum lágu höfuðkúpa og leggjabein og ýmis smærri bein samantínd og staðurinn eins og Erlendur hafði skilið við hann, hraunsteinar lagðir í hring umhverfis beinahrúguna. Þessar leifar verða hér nefndar 1. kuml. Um 60 m sunnar var aðflutt grjótdreif á hraunholti, og reyndust þar einnig vera leifar af kumli sem hér verður kallað 2. lcuml. Á þessu svæði er enginn skógur lengur heldur að mestu leyti upp- blásnir vikurmelar, en hlíðin austan í Stangarf jalli er þó allvel gróin enn. 1. kuml. Engir aðfluttir steinar voru á svæðinu þar sem kumlið var, aðeins hi-aunsteinar á stangli. Á þeim stað þar sem beinunum hafði verið safnað saman, kom upp beinagrind, en beinin voru öll mjög óskipuleg og í rauninni öll í hrærigraut. Var greinilegt, að beinunum hefur endur fyrir löngu verið safnað saman í hrúgu þarna og grafin, sennilegast vegna þess að þau hefur blásið upp. Ekki varð séð, að neitt beinanna væri í réttri legu heldur öll í óskipulegri ringulreið. Ofanjarðar lágu höfuðkúpan, leggbein, rófubein og rif, en niðri í moldinni voru kjálki á hvolfi, leggbein, rifbein, fóta- og handa- bein svo og hryggjarliðir. Athygli vakti, að tveir hryggjarliðir lágu saman eins og þeir eiga saman eðlilega, en voru samt í hrúgunni innan um önnur bein. Var greinilegt, að efstu beinin höfðu verið tínd saman nú og látin hjá hinum, sem þarna höfðu verið fyrir. Innan um beinin lágu sörvistölur, stórar raftölur og glertölur, sem voru þó allar skemmdar orðnar, hvítar utan eins og glertölum hættir til að verða. Raftölurnar ern fjórar, sú stærsta 2,2 sm í þvermál, glertölurnar 11, þar af ein aðeins hálf. Sex þeirra eru grænar að lit og litlar, ein gul og stór, tvær dökkar og enn aðrar tvær, sem voru fastar saman í ryðklumpi, gráar að lit. — Þá voru á einum stað, sunnarlega í beinahrúgunni, ryðgaðar trjáleifar en þær hrundu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.