Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 109
OXADALK
111
dal — Sturl.’s Uxadalr — antages at svare til Sæludalr, en estlig side-
dal til Skidadal; kort syd for ligger odegárden Hávarðsstaðir, i selve
dalmundingen stár gárden Sæla. Til yderligere bestyrkelse anfores, at
et snævert pas Uxaskarð, der fra sydsiden af Sæludal ligger op pá
heden, endnu ved sit navn synes at minde om dalens ældre benæv-
nelse."3 7
Ekki virðist þessi aldargamla getgáta séra Páls mjög girnileg.
Sæludalur er fjallskál eða jökulhvilft hátt uppi í snarbrattri hlíð-
inni fyrir ofan Sælu, og þar hefur sannarlega aldrei verið byggt né
byggilegt. Ekki er sennilegt að nafnið Uxaslcarð sé tilhæfulaust, en
ekki er það talið fram í örnefnaskrá frá um 1937 og enginn virðist
kannast við það nú. Telja má líklegt að ágiskunin styðjist fyrst og
fremst við nafnið Hávarðsstafiir á gömlum bæjarrústum í Hnjúks-
landi fyrir framan Sæluá. Hætt er við að það nafn eigi rót sína að
rekja til Olaviusar, sem telur meðal eyðijarða í Svarfaðardal „Vill-
inge- eller Havardstade i Hniukshlid",18 og rétt á eftir telur hann
svo einnig eyðibýlið ,,Havardstade“ í Þorvaldsdal. Jarðabók Árna
Magnússonar og Páls Vídalíns nefnir hins vegar aðeins Hávarðs-
staði í Þorvaldsdal en getur Hávarðsstaða í Skíðadal að engu.19 Þetta
er einkennilegt, ef slíkt örnefni hefur yfirleitt verið til í Hnjúkslandi,
því að jarðabókin er mjög iðin að telja upp eyðibólin. Nú á dögum
er rústin sem um er að ræða ætíð kölluð Villingastaðir. Nærri liggur
að halda að það nafn sé ekki til fyrr en eftir að jarðabókin er skráð
árið 1712. Og Hávarðsstaðanafnið ekki heldur. Sú hugsun er áleit-
in að nafnið Hávarðsstaðir í Skíðadal sé runnið frá einhverjum fróð-
um áhugamanni sem þekkt hefur Hávarðarsögu og reynt að finna
býli Hávarðar samkvæmt sögunni einhvern hugsanlegan stað. Þannig
kann þetta nafn að hafa lagt í eyra Olaviusar þótt enginn þekkti til
þess um 1712.20 Olavius er raunar eina heimildin um nafnið, aðrir
hafa það frá honum. Hávarðsstaðir í Þorvaldsdal eru hins vegar
þekktir sem. fornt eyðiból 1712 og rústirnar þekkjast enn með því
nafni. Vel má fallast á þau ummæli Guðna Jónssonar að sennilega
eigi Hávarðsstaðir í Skíðadal ekkert upprunalega slcylt við Hávarð-
arsögu.21
En hvernig á þá að fá botn í ummæli sögunnar um byggð Hávarðar
á Hávarðsstöðum í Oxadal í Svarfaðai*dal og síðan í Þorvaldsdal?
Sennilega er það alls ekki unnt svo að vel sé. Eitt er það að enginn
hliðardalur Svarfaðardals hefur nokkurn tíma verið byggður, svo að
þarna er strax brestur í keri. 1 Þorvaldsdal voru hins vegar allmargir
bæir. Minnast má þess að Þorvaldsdalur og Hálsdalur/Hamarsdalur