Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 148

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 148
152 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Húsið Geirsstaðir, áður Skólabraut 24 á Akranesi og byggt var 1903, var flutt á safnsvæðið, hlaðinn að því grunnur og frágangi á ytra borði lokið að mestu. Hitaveitulögn var lögð að húsum safnsins og var verkstæðishúsið Fróðá, tengt hitaveitunni. Safnið tók á leigu um 100 ferm. geymslu sem leysti úr brýnni þörf. Gunnlaugur Haraldsson safnstjóri fékk launalaust leyfi frá 1. ágúst en sagði síðan starfi sínu lausu í desember. Var Guttormi Jónssyni, sem starfað hefur lengi við safnið, falið að veita því forstöðu um sinn. Byggðasafn Borgarfjarðar. Það er í Safnahúsi Borgarness ásamt bóka-, skjala-, náttúrugripa- og listasafni héraðsins. Sýning byggðasafnsins er til bráðabirgða í þröngu húsnæði ásamt nátt- úrugripasafninu, þar sem væntanlegt sýningarhúsnæði byggðasafnsins í Safnahúsinu hefur enn ekki losnað. Forstöðumaður Safnahússins og byggðasafnsins er Guðmundur Guðmarsson. Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla. Gestir í safninu munu hafa verið 2.000-3.000. Forstöðu- maður var í fæðingarorlofi febrúar - ágúst. Nokkrar sérsýningar voru í Norska húsinu. Munir voru merktir og skráðir og um 300 munir frumskráðir úr safninu í Olafsvík og um 100 í Norska húsinu. Forstöðumaður safnsins er Þóra Magnúsdóttir. Byggðasafn Dalamanna. Safngestir á árinu voru um 500 á árinu. Engin breyting varð á hög- um safnsins á árinu. Forstöðumaður er Magnús Gestsson. Minjasafn Egils Olafssonar, Hnjóti. I safnið komu á árinu 3.900 gestir. Meðal nýfenginna gripa má nefna bókbandsáhöld og prentletur frá prentsmiðju Arnfirðings á Bíldudal, sem Pétur Thorsteinsson gaf út en Þorsteinn Erlingsson stýrði. Er jafnvel talið, að Þorsteinn hafi kennt bókband þar vestra. Soðningarhellu með ártali 1842 frá verstöðinni í Sel- látrum í Tálknafirði og Guðrún Einarsdóttir á Sellátrum gaf. Hellan stóð úti sem matarborð og mötuðust sjómenn við hana. Þá má nefna eldhúsinnréttingu úr torfbæ á Hamri á Múlanesi frá síðasta hluta 19. aldar og mun óvenjuleg. Búið er að múrhúða innan viðbyggingu safnhússins en annar frágangur er eftir. Forstöðumaður safnsins er Egill Olafsson. Byggðasafn Vestfjarða. I safnið komu rúmlega 7000 gestir á árinu, en það var opið daglega frá 15. maí til 30. sept. og að auki eftir samkomulagi. Forstöðumaður, Jón Sigurpálsson, var í leyfi hálft árið og var Jóna Símonía Bjarnadóttir ráðin forstöðumaður á meðan. Hreinsaði hún m.a. kvenbúninga safnsins og kom þeim fyrir í geymslu. Safnið stóð fyrir sjö skemmtikvöldum í Tjöruhúsinu, sem voru vel sótt. Á árinu voru opnaðar safndeildir á Flateyri og fyrirhugað er að opna safndeild á Þingeyri. Hins vegar gjöreyðilagðist nánast allt sem í safninu á Flateyri var í snjóflóði um haustið. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna. Þangað komu 1364 gestir og að auki 2600 skóla- nemar frá Skólabúðunum á Reykjum. Nokkurra gamalla og merkra báta var aflað til safnsins og heimild fengin fyrir öðrum. Eru það Mjóni í Ofeigsfirði, sem smíðaður var 1873 af Jóni Jónssyni í Krossnesi er smíðaði Ofeig, skektan Keppa frá Krossnesi í Víkursveit, tveir trillubátar sem Eðvald Halldórsson smíðaði, frá Ánastöðum og Gnýsstöðum á Vatnsnesi, og skektan Sæfari á Valdalæk, sem Ólafur Guð- mundsson frá Gnýsstöðum smíðaði. Safnhúsið var málað að innan og uppsetning gripa lagfærð, einnig var hafin lagfæring á lóð safnsins eftir skipulagi Gunnars Jónassonar arkitekts. Safnið fékk geymslu fyrir stóra hluti að Söndum í Miðfirði. Forstöðumaður safnsins er Jón Haukdal Kristjánsson. Heimilisiðnaðarsafnið, Blönduósi. Það er opið daglega tvo mánuði yfir sumarið, 20. júní - 20. ágúst frá kl. 14-17. Þangað komu 1050 skráðir gestir, 172 erlendir og 158 skólanemar, en talið er að um 30% fleiri óskráðir gestir komi. Skráðir safngripir eru 2610. Á safnadaginn, 9. júlí, var opnuð sýning á bættum og viðgerð- um hlutum, sérstæð sýning sem sýndi hagleik og nýtni fólks fyrrum. Vakti hún mikla athygli. Þann dag var einnig tóvinnusýning í safninu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.