Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Síða 12
12
205.—498. bls. í 3. bindi. Við prófarkalestrinn mun
hann hafa haft hjálparmenn, að minsta kosti við nokk-
urn hluta af öðru bindi og við svo sem g arkir framan
af 3. bindi.
III. f þarfir hins konunglega danska visindafélags.
Félag þetta hefir meðal margs annars út gefið
stórt verk, er heitir Regesta, diplomatica historice Danicœ.
f að er útdráttr af alls konar skjölum, er geta skýrt
Danmerkr sögu, frá árinu 822 til 1660. Fyrra bindið
kom út í tveimr heftum, Kh. 1843 og 1847 °g er xxi og
887 bls. 4. J>að er útdráttr úr 8383 skjölum. Frum-
ritin eru á ýmsum málum, enn útdrættirnir að eins á
dönsku eða iatnesku. Síðara bindið er xxxiv og 1640
bls. og er útdráttr úr 14307 skjölum. þ>að hefir kom-
ið út í 6 heftum, síðasta heftið 1870.
Árið 1880 er komin út Series secunda. Tomus
prior. J>að hefti er 288 bls. 4., útdráttr úr 2067 skjölum.
Hvé mikinn þátt Jón Sigurðsson á í þessu stóra
verki, er nú eigi mögulegt að sjá. í formála þess
bindis, er út kom 1847, xv- bls., er Jón Sigurðsson
nefndr sem samvinnandi (Medarbeider) að þessu verki,
og neðar á sömu blaðsíðu er sagt, að Registrator
Knudsen hafi einkum annazt redadiónina (niðrröðun
seðlanna og síðasta undirbúning handritsins undir
prentun), prentun og prófarkalesning á þessu bindi.
Registrator Knudsen andaðist 20. maí 1851. Var þá
14. júní 1853 tekinn í hans stað Cand. philol. Seidelin.
í Formálanum við það bindi, sem út kom 1870, er
Seidelin nefndr sem redacteur, enn Jóns Sigurðssonar
er þar eigi getið. í formálanum við heftið, sem út
kom 1880, er þess getið, að Seidelin hafi andazt árið
1872, og því næst eru þeir menn nefndir, er þá tóku