Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Síða 17
17
legir inngangar, einkar fróðlegir og þýðingarmiklir
fyrir réttarsögu landsins. Verk þetta er gullnáma
eigi að eins fyrir lögfrœðinginn og réttarsögumanninn,
heldr fyrir hvern þann, er eitthvað fæst við sögu ís-
lands, enda mun varla nokkur maðr ráðast í að semja
nokkurt sögulegt rit um ísland á því tímabili, er það
nær yfir, án þess að hafa það við höndina. Fyrsta
bindið, er nær frá 1096 til 1720, er ófullkomnast. Ber
það til þess, að til var áðr prentað lagasafn um það
tímabil, nefnilega: M. Ketilsson. Forordninger og
aabne Breve, þrjú bindi, i.og2.Del Hrappsey 1776—
78, og 3. Del Kh. 1787, og þótti eigi nauðsynlegt að
taka upp í safnið þau skjöl eða tilskipanir, er þar eru
prentaðar* 1.
VII. Stjórnleg rit.
Sem kunnugt er, stofnaði Jón Sigurðsson um
1840 tímaritið Ný Félagsrit. Var það ætlunarverk
þessa tímarits, að frœða menn um hinn stjórnlega hag
1) Til að safna efninu til þessa mikla verks, hefir Jón
Sigurðsson varið ákaflega miklum tíma, enda má sjá merki
til þessa í handritasafni hans. þar finnast tíu bindi í fjór-
blöðuðu broti nr. 110.—19., sem hafa á kjölnum titifinn
Begesta. 011 bindin, nema hið fyrsta, eru með hendi Jóns
Sigurðssonar og án efa samin af honum til undirbúnings
undir útgáfu Lagasafnsins. Fyrirsagnir bindanna eru þessar:
I. Diversa 1280—1840. II. Geheime-Archivet. 1540—1640.
HI. Cancelliet. 1630—1800. IV. Cancelliet: Geistlige De-
partement. 1800—1848. V. Cancelliet: Justitsdepartemen-
tets Expeditioner. Forestillinger. 1814—1848. VI. Cancel-
liet: Justitsdepartementets Breve. 1800—1824. VII. Can-
celliet: Justitsdepartementets Breve. 1825—1848. VIII.
Rentekammeret: Forestillinger. Resolutioner. 1661—1848.
IX. Rentekammeret: Designationer. Kammerbreve. 1661—
1848. X. Universitetsdireetionen : Kirke- og Undervisnings-
ministeriet. 1805—1848.
Tímarit hins íslenzka bókmentafélags. III. 2