Eimreiðin - 01.01.1895, Page 14
14
þessar samgöngubætur hafa í för með sjer, verðum vjer sömu armingj-
arnir og hingað til og fleiri og fleiri hrökklast úr landi með þeirri
röngu skoðun, að ekki sje hægt að lifa viðunanlegu lífi á Islandi.
En sje ekki hægt að lifa góðu lífi á íslandi, þá er það ekki landinu
að kenna, heldur samgönguleysinu.
Hvers vegna er meira auðmagn í Bandaríkjunum í Ameríku,
en í nokkru öðru ríki? Er það af því að landið sje betra en nokkurt
annað land? Nei, það eru til lönd, sem eru langt um betri og
frjósamari, en samt eru íbúar þeirra hreinustu armingjar í saman-
burði við Bandaríkjamenn. Af hverju kemur þetta? Af því að
Bandaríkjamenn hafa sjeð betur en nokkur önnur þjóð, hver eru
hin fyrstu skilyrði fyrir velmegun hverrar þjóðar, nefniiega greiðar
samgöngur. Fyrir því hafa þeir varið meira fje til að efla sam-
göngur sínar en nokkur önnur þjóð, og halda því stöðugt áfram.
Árið 1893—4 lögðu þeir sporbrautir (hjer um bil eintómar raf-
magnsbrautir), sem vóru 2352 kílómetrar að lengd og ganga nú á
þeim 5721 vagn. Þetta var nú á einu ári. Og lítum svo á járn-
brautir þeirra. Þær námu i.janúar 1895 177,753 enskum mílum
eða hjer um bil 280,000 kílómetrum, sem er langt uni meira en
allar brautir Norðurálfunnar, og meira að segja liklega meira en
allra annarra ríkja í heiminum til samans. Á árunum 1880—90
nam járnbrautagjörð þeirra að meðaltali 8000 kílómetrum á ári.
Síðan hefur hún numið hjer um bil 6000 kílóm. um árið.
Má nú ekki eins spyrja: Hvers vegna eru íslendingar fátækari
en nokkur önnur siðuð þjóð? Og svarið virðist liggja beint við:
Af því að hjá engri siðaðri þjóð eru samgöngurnar í öðru eins
ólagi og á Islandi.
Hættið að safna í sjóvetlinginn, hættið að hrúga peningum í
viðlagasjóð, en verjið hverjum eyri, sem mögulegt er án að vera,
til þess að bæta samgöngurnar. Því þær eru hið fyrsta lífsskilyrði
hverrar þjóðar. Allar aðrar framfarir koma á eptir.
Og þau einu samgöngufæri, sem geta fullnægt þörfum nú-
tímans, eru eimskip og eimlestir.
V. G.