Eimreiðin - 01.01.1895, Page 40
40
því helmingurinn af þeim börnum, er sýktust, eða 50 °/0, þá dóu nú
aðeins 25 °/0, þegar meðal þetta var viðhaft. Frá þessu skýrði hann á
læknafundi einum, sem haldinn var í Buda-Pest i septembermán. í haust,
og var þessari fregn tekið með miklum fögnuði. Fó voru margir i fyrstu
töluvert vantrúaðir á þetta, þvi menn rak minni til tilrauna Koch’s háskóla-
kennara i Berlin, þegar hann þóttist hafa uppgötvað því nær óyggjandi
meðal við berklasótt, en það lyf reyndist þó við nánari tilraunir þvi miður
að koma að litlu haldi. En hjer fór þó nokkuð á annan veg; því lengur
sem þetta nýja barnaveikismeðal hefur verið notað, þess betri árangur
þykjast menn hafa sjeð af þvi, og mótstöðumönnum þess fækkar því
Dr. Roux.
dag frá degi. Eptir siðustu skýrslum deyja aðeins 11 °/0 af þeim, sem
sýkjast, þar sem meðal þetta er viðhaft.
Um sama leyti sem Roux gjörði tilraunir sinar i París, vann Behring
háskólakennari í læknisfræði i Berlin í sömu stefnu og komst að hinni
sömu niðurstöðu. Hljóta þeir þvi báðir hinn sama veg og sóma af upp-
götvun þessari.
I stuttu máli skal nú skýrt frá meðalinu og notkun þess. Barna-
veikisbakteriur eru ræktaðar í vökva, sem þær þrifast vel i, og þegar
þær hafa náð góðum þroska, er vökvanum spýtt inn undir húðina á
geitfje eða hestum (hestar hafa reynzt bezt). Dýrið verður nokkuð veikt
á eptir, en rjettir þó við aptur. Síðan er innspýtingin endurtekin og
verður dýrinu þá minna meint af þvi, og að. siðustu hefur það engin