Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 9

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 9
9 þeirra stað hin hálfgrisku skáld, Vergil, Hóraz og fleiri. Afleið- ingin af þessu hefur orðið sú, að þrátt fyrir auðlegð og fegurð bókmenta þeirra, er vér höfum fengið frá þeim, getur alþýða, að minsta kosti nú á tímum, ekki lesið þær án þess að henni finnist eitthvað annarlegt, óeðlilegt og tilgerðarlegt vera þar; stafar það mest af því, að skáldin hafa viljað hreykja sjer um of upp á há- hest fornmentanna, eftir dæmi Þjóðverjanna. Sem betur fer eru menn nú horfnir frá þessum óeðlilega skáldskap. En þótt hliðrað hafi verið til á ýmsa vegu í skólu- num, til þess að forðast misfellur þær, er nefndar hafa verið, þá hefur fornmálafræðin alt til síðustu tíma að mestu haldið sæti því á háskólanum og í lærðu skólunum, er henni var skipað á dögum ný-húmanismans. Verður þá eðlilega fyrir oss sú spurning: Mun hún geta haldið þessu sæti framvegis? Fornmálafræðin er nú stunduð með meiri víðtæki og djúp- hygni en nokkru sinni áður, en jafnframt sætir hún, svo sem kunnugt er, hörðum árásum. Er þeim að vísu eigi beint svo mjög að henni sjálfri sem vísindagrein, eða réttmæti hennar sem námsgrein við háskólann, en þó láta menn sér stundum um munn fara, að hún hafi lifað sitt fegursta og verkefni hennar séu einatt margtuggin. En þvi ákafari eru árásirnar á sæti hennar í lærðu skólunum. Vér vitum hverjar afleiðingarnar hafa orðið í Noregi; á Þýzkalandi hefur fornmálafræðin setið hvað fastast, en jafnvel þar hefur hún orðið að þoka nokkuð á síðustu io árum, og hefur það ekki gengið orða- eða eftirtölulaust. Að minni hyggju getur naumast leikið vafi á, hver endirinn muni verða á þessari hreyfingu, bæði hjá oss og annarsstaðar. Vilji menn ekki alveg sleppa einingunni í mentun þeirri, er lærðu skólarnir veita, og stofna mismunandi skóla, er veiti nokkurnveginn jafnan aðgang að háskólanum (þar á meðal þá einnig skóla, er legðu nálega alla áherzluna á fornmálin og fornu bókmentirnar), þá rekur að því, að annað fornmálanna verður alveg að rýma sess sinn í skólunum, og hitt að nokkru leyti. Grískan mun fara fyrst; hún hefur nefnilega ekki svo mikið sem aldursrétt á sér sem námsgrein í skólunum, og er þó sá réttur í sjálfu sér harla lítilsverður; rás viðburðanna verður og eigi breytt, en hún hefur ráðist þannig, að sambandið er orðið mjög veikt milli nú- tímans og grísku mentanna í hinni upprunalegu mynd þeirra, ekki í hinu latneska gervi þeirra. Aftur á móti hefur latínan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.