Eimreiðin - 01.01.1899, Blaðsíða 14
H
sérstök vísindi; auk þess er jafnan unt að koma með djúpsettari
skýringar og nýjar skoðanir á þeim ritum, er fyrri málfræðingar
hafa fengist mikið við og ef til vill skýrt nálega til fullnustu. Og
loks eiga fornmálafræðingarnir enn þá eitt mikið starf fyrir hönd-
um; hafa þeir þvi miður alt of oft gleymt þvi eða virt það að
vettugi og hafa þvi aðrir, sem ekki voru kallaðir til þess, fengið
að vinna að því. Skáldrit, sagnarit og heimspekisrit fornaldarinnar
hafa fjársjóðu að geyma, sem án efa munu geta glatt og auðgað
rnannsandann um mjög langan tíma enn; en fyrst svo er, þá
mega þessir fjársjóðir ekki vera séreign þeirra einna, sem hafa
tæki til að læra fornmálin, heldur eru þeir þess verðir, að þeir
séu gjörðir aðgengilegir öllum þeim flokk manna, sem andlegt líf
og áhugi lifir hjá. Og flokkur þessi er ekki fámennur, einkum
nú, er bæði bændur vorir og verkamenn eru vaknaðir og orðnir
gagnteknir af fróðleiksfýsn, er vér háskólamenn naumast getum
gjört oss nokkra hugmynd um. Að vísu er það nú ekki á hvers
málfræðings færi að vinna að þessu starfi, með því að semja góðar
þýðingar og góðar lýsingar á fornaldarlifinu; en hitt er jafnvíst,
að engir geta leyst starf þetta viðunanlega af hendi, nema þeir
einir, sem hafa aflað sér djúpsettrar þekkingar á fornmálunum.
Þannig hefur því visindagrein vor enn þá ávalt nóg verkefni, og
það merkileg og mikilsverð verkefni; en einmitt vegna þess þarf
hún ekki að óttast; hún mun enn þá um langan aldur geta sér
álit og orðstír, og það er því hreinasti óþarfi fyrir hana að fara
að hugsa um dauða sinn eða búa sig undir hann, — þess þarf hún
hvorki í dag né á morgun!
Þýtt hefur
/• /■
II. MEIRIHLUTAÁLIT KENSLURÁÐS DANA.
Með því að afnám grískukenslunnar í latínuskólanum er nú
komið á dagskrá þjóðarinnar, höfum vér álitið, að lesendum Eim-
reiðarinnar mundi þykja fróðlegt ^ð lesa framanskráða ræðu eftir
prófessor M. C/. Gertz, sem jafnvel ekki hinn svæsnasti íslenzki
embættishroki mun voga sér að neita, að hafi fult vit á málinu.
Hann er sem sé ekki að eins kennari í grisku við háskólann og
álitinn bezt að sér i henni allra manna í Danmörku, heldur og
formaður í kensluráði Dana og þannig æðsti ráðanautur kenslu-