Eimreiðin - 01.01.1899, Síða 19
19
grískukenslu í skólunum og árangrinum af henni orðið
henni í vil, eða að minsta kosti fremur í vil. En gegn þessari
lýsing hikar annar okkar, sem hér riturn undir, sér ekki við að
leggja fram vottorð sitt, sem líka er staðfest af mörgum öðrum
álitsskjölum. Og þetta vottorð er bygt á þeirri reynslu, er hlutað-
eigandi hefur átt kost á að afla sér, sumpart sem kennari við skóla
hér í bænum, þó nú séu urn 10 ár liðin síðan, og sumpart sem
prófdómandi við burtfararpróf um fjöldamörg ár alt til síðustu ára,
og sumpart loks sem háskólakennari, þó við það verði að athuga,
að hann á háskólanum mestmegnis hefur fengist við að kenna
þeim stúdentum þessa námsgrein, sem einna bezt hafa verið að
sér í henni í skólunum og með sérstökum áhuga hafa lagt þetta
nám fyrir sig. Fyrst og fremst verður hann að koma í veg fyrir,
að nokkur taki ummæli kensluráðsins í prófskýrslunni fyrir 1888
svo, að þau séu vottur um, að alt sé í góðu lagi. Reyndar er
þar sagt, þó ýmsir og það fremur öruggir varnaglar séu um leið
slegnir, að kenslan sé yfirleitt viðunandi. En með þessu er auð-
vitað að eins átt við það, að frammistaða lærisveinanna yfirleitt
samsvari þeim kröfum, sem tiltök séu að gera til þessarar náms-
greinar, eins og hún nú einu sinni er sett i skólanum.
En þetta útilykur engan veginn, að menn geti álitið námsgreinina
illa setta og árangurinn af kenslunni því mjög bágborinn, þegar á
þetta er litið eitt fyrir sig. Því næst þykist hann geta borið vitni
um það, að grískukenslan í skólunum enn þá ávalt snúist þvi nær
eingöngu urn þýðingu einstakra orða, myndir þeirra og beygingu.
Og hann telur sér óhætt að bæta því við, að þetta rnuni aldrei
að nokkru ráði geta orðið á annan veg, nema tök séu á að fjölga
kenslustundunum í þessari námsgrein að miklum mun. Auðvitað
getur verið nokkur munur á þessu í hinum ýmsu skólurn, og eins
áraskifti að því við sama skólann. En yfirleitt, og að því er allan
þorrann snertir, verður hið sama ofan á. Og tímarnir hafa heldur
ekki breyzt mjög frá því, sem var meðan gamla skólafyrirkomu-
lagið átti sér stað. Hann minnist þess þvert á móti frá skólaárum
sínum, að þá var, að minsta kosti í þeim skóla, sem hann var í,
lögð fult eins miki'l áherzla á hina sögulegu hlið námsgreinar-
innar, sem nú er gert, og minni á orðmyndir og beygingar. Það
er óhætt að fullyrða, að í tveimur neðstu grískubekkjum skólanna
snúist kenslan því nær eingöngu um orðmyndir og beygingar, og
svo í viðbót þær þýðingar eftir orðabókunum, sem ekki verður
2*