Eimreiðin - 01.01.1899, Síða 35
35
fyrir os.s, að krefjast fullkomins aðskilnaðar frá Danmörku, en ekki af
því, að vér álítum, að sú hugmynd i sjálfu sér, eins og nú stendur, sé
likleg til þess, að eignast tilhangendur meðal þeirra, er vilja sjálfstjórnar-
máli Islands vel.«
2. Frestandi synjunarvald. Þessi stefna fer því fram, að
það ákvæði verði gert að lögum, annaðhvort eitt sér eða í sam-
bandi við aðrar breytingar á stjórnarskránni, að konungur geti
aldrei neitað neinum lögum oftar en tvisvar. Séu lögin samþykt
á þremur þingum í röð, þá verði hann að staðfesta þau í þriðja
sinn, eða þau að öðrum kosti verði að gildandi lögum án staðfest-
ingar hans eða undirskriftar.
Ef þessi breyting væri fáanleg, þá væri í rauninni alt annað
fengið með henni einni. Því ef alt það yrði að lögum, sem al-
þingi samþykti þrjú þing í röð, hvort sem það væri með eða móti
vilja konungs eða stjórnarinnar, þá væri það á valdi þingsins að
gera hverjar þær breytingar, sem því sjálfu þóknaðist. Þingið
hetði þá fengið bæði tögl og hagldir, ekki einungis á löggjafarvald-
inu, heldur einnig á framkvæmdarvaldinu og dómsvaldinu. Því
með því að bæði framkvæmdarvald og dómsvald hvílir á grund-
velli löggjafarinnar og er háð henni, þá gæti þingið með lögum
skipað báðum þessum völdum alveg eftir geðþótta sínum. Vér
vonum, að hverjum heilvita manni sé af þessu ljóst, að þessi
stefna þannig fer fram á, að rýra bæði löggjafar- og framkvæmdar-
vald konungs svo tilfinnanlega, að engin minstu líkindi eru til, að
nokkur konungsstjórn í víðri veröld gangi nokkru sinni að því,
nema fu.ll nauðung reki til. Þetta fyrirkomulag á sér heldur'hvergi
staðjaema í Noregi. En þar stóð alveg sérstaklega á, er það var
sett v' lög; konungsvaldið stóð þar ekki frjálst og óháð gagnvart
þjóðinni, heldur varð að lúta þeim skilmálum, sem hún setti. Engu
slíku getur nokkurn tíma verið til að dreifa hjá oss, og það væri
því vitfirring næst, að byggja nokkrar framtíðarvonir á þessari
stefnu, sem hver hugsandi maður hlýtur að sjá, að aldrei getur
leitt til neins árangurs.
y. Benedizkan. Þessi stefna vill taka stjórnarskrána til gagn-
gerðrar endurskoðunar, og er endurskoðunarfrumvarpið svo al-
kunnugt, að óþarft virðist að skýra ýtarlega frá því. Helztu atriði
þess eru þessi: Það á að afnema bæði ráðgjafa Islands í Kaup-
mannahöfn og landshöfðingjann í Reykjavík, og setja á stofn alveg
3*