Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 38

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 38
4o vér ættum allar stjórnarskrárbreytingar framvegis undir stjórn Dana. Vér skulum alveg leiða hjá oss að svara þessu og láta sem vér samsinnum þvi. Hvernig viki þá málinu við? Væri benedizkan þá ekki orðin góð? Onei, ekki er nú því að heilsa, því þá er eftir þriðji aðalagnúinn, og nú komum vér að honum. Þriðji agnúinn er sá, að stjórnarfyrirkomulag það, er hér er um að ræða, er með öllu ófáanlegt, og sá agnúi tekur vitanlega af skarið. A hverju byggja menn nú það? A margítrekuðum svörum stjórnarinnar, sérstaklega í konunglegri auglýsing til Islendinga 2. nóv. 1885. Þar segir meðal annars svo, að ef æðsta stjórn Islands yrði fengin í hendur ábyrgðarlausum landstjóra, er skyldi hafa vald til að ráða þeim málum til lykta í umboði konungs, er konunglegs samþykkis þurfa — með þeim einum undantekningum, að hann gæti eigi staðfest breytingar á stjórnarskipunarlögunum, eigi náðað menn né veitt almenna uppgjöf á sökum — og sem skyldi taka sér ráðgjafa og láta þá framkvæma vald sitt og hafa ábyrgð á stjórnarstörfunum fyrir alþingi, þá myndi Island með þessn móti »í raun og veru verða leysi úr öllu sambandi við ríkiö. . . . . En slíkt fyrirkomulag mundi fara í bága við hina gildandi stjórn- arskipun ríkisins, og gœti eigi samrýmst siöðu íslands að lögum sem óaðskiljanlegs hluta Danaveldis.t- Rétt er nú það,' munu menn svara, góður er að því nautur- inn, svarinu því arna. En sá er hængurinn á, að það er alt bygt á tómum misskilningi. Það er því engin sönnun fyrir því, að fyrirkomulagið sé ófáanlegt, þó fyrverandi og núverandi stjórn Islands hafi neitað oss um það og álíti það gagnstætt gildandi lögum. Hvenær sem ný stjórn kemst til valda í Danmörku og með henni nýr Islandsráðgjafi, þá er líklegt að hinn rétti skilningur verði ofan á, og vér fáum vilja vorn í þessu. Hinn rétti skilningur er okkar megin og hann hlýtur að sigra á endanum, ef vér að eins höfum þolinmæði að bíða nógu lengi og þreytumst ekki í baráttunni. En ætli það sé nú svo óyggjandi, að hinn rétti skilningur sé okkar megin? A hverju byggist það nú eiginlega? Jú, svara menn, forvígismaður benedizkunnar segir það sjálfur, og honum er til trúandi að vita það, lögfróðum manninum, sem hefir rannsakað málið út í æsar. Hann segir, að þetta sé ekkert annað en »inn- limunarkredda« hjá stjórninni í Kaupmannahöfn, sem hafi »ekki við annað að styðjast en bersýnilegustu rangindi« (Andv.XIV, 10)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.