Eimreiðin - 01.01.1899, Qupperneq 38
4o
vér ættum allar stjórnarskrárbreytingar framvegis undir stjórn Dana.
Vér skulum alveg leiða hjá oss að svara þessu og láta sem vér
samsinnum þvi. Hvernig viki þá málinu við? Væri benedizkan
þá ekki orðin góð? Onei, ekki er nú því að heilsa, því þá er
eftir þriðji aðalagnúinn, og nú komum vér að honum.
Þriðji agnúinn er sá, að stjórnarfyrirkomulag það, er hér er
um að ræða, er með öllu ófáanlegt, og sá agnúi tekur vitanlega af
skarið. A hverju byggja menn nú það? A margítrekuðum svörum
stjórnarinnar, sérstaklega í konunglegri auglýsing til Islendinga
2. nóv. 1885. Þar segir meðal annars svo, að ef æðsta stjórn
Islands yrði fengin í hendur ábyrgðarlausum landstjóra, er skyldi
hafa vald til að ráða þeim málum til lykta í umboði konungs, er
konunglegs samþykkis þurfa — með þeim einum undantekningum,
að hann gæti eigi staðfest breytingar á stjórnarskipunarlögunum,
eigi náðað menn né veitt almenna uppgjöf á sökum — og sem
skyldi taka sér ráðgjafa og láta þá framkvæma vald sitt og hafa
ábyrgð á stjórnarstörfunum fyrir alþingi, þá myndi Island með
þessn móti »í raun og veru verða leysi úr öllu sambandi við ríkiö. .
. . . En slíkt fyrirkomulag mundi fara í bága við hina gildandi stjórn-
arskipun ríkisins, og gœti eigi samrýmst siöðu íslands að lögum sem
óaðskiljanlegs hluta Danaveldis.t-
Rétt er nú það,' munu menn svara, góður er að því nautur-
inn, svarinu því arna. En sá er hængurinn á, að það er alt bygt
á tómum misskilningi. Það er því engin sönnun fyrir því, að
fyrirkomulagið sé ófáanlegt, þó fyrverandi og núverandi stjórn
Islands hafi neitað oss um það og álíti það gagnstætt gildandi
lögum. Hvenær sem ný stjórn kemst til valda í Danmörku og
með henni nýr Islandsráðgjafi, þá er líklegt að hinn rétti skilningur
verði ofan á, og vér fáum vilja vorn í þessu. Hinn rétti skilningur
er okkar megin og hann hlýtur að sigra á endanum, ef vér að
eins höfum þolinmæði að bíða nógu lengi og þreytumst ekki í
baráttunni.
En ætli það sé nú svo óyggjandi, að hinn rétti skilningur sé
okkar megin? A hverju byggist það nú eiginlega? Jú, svara menn,
forvígismaður benedizkunnar segir það sjálfur, og honum er til
trúandi að vita það, lögfróðum manninum, sem hefir rannsakað
málið út í æsar. Hann segir, að þetta sé ekkert annað en »inn-
limunarkredda« hjá stjórninni í Kaupmannahöfn, sem hafi »ekki
við annað að styðjast en bersýnilegustu rangindi« (Andv.XIV, 10)