Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 43

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 43
43 þar sem ákvæði um þetta vantar í stjórnarskrána, þá hlýtur um það að fara eftir ákvæðum alríkislaganna. I stjórnarskránni er hvergi tekið fram, hvernig undirbúningur laga undir staðfesting eða annara mikilsvarðandi stjórnarmálefna, er konungur ræður til lykta, eigi fram að fara. Hvort hann eigi fram að fara i ríkis- ráðinu eða utan þess og i samráði við Islandsráðgjafann einan. En um þetta eru fastákveðnar reglur í alríkislögunum (15.-16.gr.), og þær hljóta því einnig að gilda um meðferðina á sérmálum ís- lands, úr því að hér er eyða í stjórnarskránni. í stjórnarskránni er heldur ekkert ákvæði um það, hvernig sjálf staðfesting laganna skuli fara fram, hvort undirskrift konungs eins sé nægileg til þess að veita frumvörpum og ályktunum alþingis lagagildi, eða undir- skrift íslandsráðgjafans sé líka nauðsynleg. Það liggur nú í augum uppi, að þetta getur ekki verið komið undir geðþekni konungs, heldur verður það að vera lögbundið. Og þar sem engin ákvæði eru um þetta í stjórnarskránni, þá hljóta ákvæði alríkislaganna (15.gr.) líka að gilda í þessu efni, en þau fyrirskipa, að undirskrift ráðgjafa sé nauðsynleg. Um ábyrgð ráðgjafans er það eitt tekið fram i stjórnarskránni, að hann skuli hafa ábyrgð á því, að stjórn- arskránni sé fylgt fy.gr.). Aftur er þar hvergi tekið fram, að hann skuli bera ábyrgð á öllum þeim ályktunum, er hann undirritar með konungi né á stjórnarstörfunum yfirleitt. Öllum hlýtur nú að skiljast, að algerleg vöntun slíkra ákvæða væri óhugsandi, þar sem um takmarkað einveldi er að ræða, og þar sem þau vantar í stjórnarskrána, þá hijóta ákvæði alríkislaganna (12—13. gr.) að gilda i þessu efni. Af þessu má sjá, að ákvæði stjórnarskrárinnar ná ekki til allra atriða, er lúta að sérmálum vorum, heldur eru þau í sumum greinum takmörkuð af ákvæðum alrikislaganna, þó að það séu þau ein atriði, er ekki verður með sönnu sagt, að ríði i verulegan bága við það, að vér höfum löggjöf vora og stjórn út af fyrir oss (að undanskildum ábyrgðarákvæðunum). Þessa verða menn vel að gæta, þegar um kröfur vorar er að ræða og þann réttargrundvöll, er vér verðum að byggja þær á. Samkvæmt þessu er það meðal annars alríkislagaboð, að öll lög og mikilsvarðandi málefni skuli borin upp fyrir konungi í ríkisráðinu, eins hin íslenzku sérmál sem önnur. Af því leiðir aftur, að ráðgjafinn fyrir ísland verður að eiga sæti í ríkisráðinu. Að haga þessu öðruvísi riði í fullkominn bága við alríkislögin.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.