Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 49

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 49
49 Breta. En þetta er engin sönnun fyrir þvi, að það reyndist ís- landi vel. Bæði er, að Danir hafa ekki hingað til sýnt sig í því, að hafa eins gott lag á að stjórna nýlendum sínum og lýðlendum eins og Bretar, enda hafa og sumar af þeim nýlendum, þar sem fyrirkomulagið hefir gefist bezt, ólikt meira bolmagn gegn Bretum, ef ágreiningur risi upp, heldur en vér höfum gagnvart Dönum. Þessa verða menn vel að gæta og ekki bera það saman, sem ekki er saman berandi. En setjum nú svo, að menn vilji ekki láta sannfærast af því, sem hér hefir verið tekið fram gegn fyrirkomulagi miðlunarstefn- unnar. Væri þá nokkur von um að það fengist? Einn af forvígis- mönnum stefnunnar svarar því fortakslaust með jái. Hann segir, að það sé óhugsandi, að stjórnin mundi neita oss um það, hún geti það ekki. Þessu hefir bingað til verið erfitt að mótmæla nema með líkum einum, af þvi að stjórn vor hefir aldrei fengið tækifæri til þess, að láta skoðun sína á þessu í ljósi. Vér höfum því gert oss far um að komast eftir, hver skoðun stjórnarinnar væri. Höfum vér í því skyni þýtt á dönsku grein þá í i. tölubl. »Nýju Aldurinnar«, þar sem rækilega er skýrt frá stefnunni, og lagt hana fyrir ráðgjafa Islands, auk þess sem hann mun hafa kynt sér sjálft miðlunarfrumvarpið. Og hann hefir ótvíræðlega lýst því yfir við oss, að fyrirkomulag miðlunarinnar gæti alls ekki komið til greina; það væri engu síður óaðgengilegt en benedizkan, heldur öllu frekar (»mindst ligesaa uantageligt«). Og þetta hefir hann leyft oss að hafa eftir sér og um leið getið þess, að hann hafi skýrt landshöfðingja frá hinu sama. Ef forvigismenn miðlunarinnar því ekki vilja eða þora að reiða sig á vor orð, þá geta þeir snúið sér til landshöfðingja og fengið staðfesting á þessu hjá honum. En þetta er engin sönnun, munu menn svara, fyrir því, að þetta fyrirkomulag sé ófáanlegt; því ef vinstristjórn kæmist til valda i Danmörku, þá gæti hún haft aðra skoðun á þessu og álitið fyrirkomulagið aðgengilegt. En þó að þess konar stjórnarbreyting yrði (sem reyndar lítil von er urn í bráð), þá eru engin líkindi til, að annað yrði ofan á. Svo vel vill til, að einn islenzkur ritstjóri hefir ýtarlega gert grein fyrir stefnunni í víðlesnu dönsku blaði, og höfum vér í tilefni af þvi fundið að máli nokkra af þeim vin- striforingjum Dana, er mestrar sanngirni og sjálfstæði vilja unna oss, og spurt þá um álit þeirra á stefnunni. Og þeir hafa látið í ljósi, að þeir bæði álitu fyrirkomulag hennar annkannalega ómynd 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.