Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Side 51

Eimreiðin - 01.01.1899, Side 51
5i útlendu máli við 7 þaulæfða stjórnmálamenn Dana, sem mæltu á sína eigin tungu og væru í ákveðnum meirihluta. Þar sem þessu er þannig varið, eru lítil líkindi til, að niður- staða sú, sem meirihluti nefndarinnar kæmist að, yrði oss í vil. Og ef hún yrði oss andvíg, þá væri ver farið en heima setið. Þá hefði stjórnin fengið sterkan bakhjall í mótstöðu sinni gegn kröf- um vorum, þar sem væri alt ríkisþingið. Og þá má nærri geta, að hún léti ekki framar bugast. Og þó maður nú gerði ráð fyrir, að niðurstaða sú, sem nefndin kæmist að, yrði oss mjög í vil, og stjórnin svo fylgdi tillögum hennar, þá væri það þó reglulegt háskaspil fyrir sjálfstæði vora að samþykkja slíka nefnd. Því ef vér hefðum einu sinni samþykt, að ríkisþingið, eða ríkisþingmenn tilnefndir af því, skyldi fjalla um sérmál vor, þá væri með því skapað fyrirdæmi (Prœcedens), sem hætt er við að yrði gripið til og bygt á síðar meir, ef viðlíka ágreiningur risi upp milli stjórnarinnar og alþingis. Ef vér hefðum einu sinni rétt ríkisþinginu höndina, að því er sérmál vor snertir, þá er hætt við, að ekki yrði auðhlaupið að því fyrir oss, að kippa henni að oss aftur. Eins og Jón Sigurðsson jafnan hélt því fastlega fram í hinni fyrri stjórnarskrárbaráttu vorri, áður en stöðulögin komu út, að vér ættum ekkert að eiga við ríkisþing Dana um mál vor, heldur við konunginn einan, eins verðum vér nú að halda því fastlega fram, að enginn nema vér og lögleg stjórn vor haíi um þau sérmál vor að fjalla, sem samkvæmt stöðulögunum eru hinu almenna löggjafarvaldi (ríkisþinginu) óviðkomandi. Annars er sjálfstæði vorri hin mesta hætta búin. Því ef alþingi einu sinni hefði veitt ríkisþinginu heimild til að skifta sér af sérmálum vor- um, þá gæti það gert það oftar síðar meir, — ef til vill ótilkvatt og án samþykkis alþingis. Stórorðustu blöðin á Islandi mundu sannarlega einhvern tíma hafa haft það til, að kalla það »landráð«, »uppgjöf landsréttinda vorra« eða öðrum viðlika fögrum nöfnum, að fara að leggja sér- mál vor undir atkvæði nefndar, sem skipuð væri að meira en hálfu leyti dönskum ríkisþingmönnum, er ekki eru að neinu leyti við þessi mál vor riðnir, og vitanlega hafa ekki næga þekkingu til að dæma um þarfir vorar. Yið alt þetta bætist svo í ofanálag, eins og skýrt var tekið fram á alþingi síðast (Alþt. 1897, B. 672), að um þessa nefndar- skipun getur nú ekki framar verið að ræða. Þó að stjórnin væri 4*
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.