Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 64

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 64
64 (} ríkisráðinu eða utan þess), þá mundi rikisrétturinn óðara vísa því máli frá, af þvi málið væri ekki höfðað af hinu rétta ákæru- valdi (alþingi) og ætti ekki heldur að dæmast af ríkisréttinum. Enn hafa þau vandkvæði verið talin stafa af ríkisráðssetu ráð- gjafans, að jafnvel þótt hann færi að mæta á alþingi, þá fengist engu meiri trygging, en hingað til hefir verið, fyrir þvi, að lög alþingis næðu staðfesting konungs. Þó að ráðgjafinn lofaði á al- þingi fulltingi sínu til þess, að löggjöf næði staðfesting konungs, þá ætti hann það algerlega undir atkvæðagreiðslunni í ríkisráðinu, hvort málið næði fram að ganga. Og fengist svo ekki staðfest- ingin, af því að íslandsráðgjafinn hefði orðið í minnihluta, þá ætti hann ekki annars úrkosti, en að koma með þessi málalok til þingsins aftur og skýra því frá, hvernig farið hefði. En þetta er auðvitað engan veginn svo. Tryggingin er marg- falt meiri en nú. Nú er hún sem sé engin. Jafnvel þótt full- trúi stjórnarinnar á alþingi, landshöfðinginn, fallist á eitthvert laga- frumvarp og mæli með þvi við stjórnina, þá getur samt vel svo farið, að það öðlist ekki staðfesting. Og svo situr alt í sömu skorðum. Ef vér aftur á móti fáum ráðgjafann sjálfan á þing, þá verður hann að mæla með hverju því máli við konung, sem að samkomulagi hefir orðið milli hans og alþingis. Og fari þá svo, sem sjaldnast þarf að gera ráð fyrir, að konungur neiti að fylgja tillögum ráðgjafans, þá verður afleiðingin óhjákvæmilega sú, að ráðgjafinn segir af sér, samkvæmt fastri stjórnarvenju eins hjá Dönum sem öðrum. Konungur verður þá að fá sér annan ís- landsráðgjafa, áður en synjunin getur orðið að löglegri stjórnar- athöfn. Tryggingin gegn lagasynjununum er því svo mikil, sem hún yfir höfuð getur orðið, þar sem venjuleg þingbundin kon- ungsstjórn á sér stað, án þess að hendur konungs séu bundnar af frestandi synjunarvaldi; en að því mun, eins og áður er sagt, engin konungsstjórn nokkru sinni ganga, nema fuli nauðung reki til. Þeir sem hafa efast um, að þingseta ráðgjafans veitti nokkra trygging gegn lagasynjunum, hafa sem fyr bygt það á þeirri röngu skoðun, að úrslit íslenzkra mála í rikisráðinu væru komin undir atkvæðagreiðslu allra ráðgjafa konungs þar. En þar sem nú engin atkvæðagreiðsla getur átt sér stað í rikisráðinu, þá er ljóst, að hún getur aldrei orðið neinu máli að falli. Þegar menn nú athuga þær óyggjandi skýringar, sem nú eru fram komnar um meðferð mála i rikisráðinu og sérstöðu Islands-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.