Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 78

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 78
7» Vér höfum engu við að bæta við þessi hyggilegu og snjöllu orð vors elzta og reyndasta þinggarps og stjórnmálaskörungs, sem vér þykjumst vissir um, að margir muni taka til greina, og álítum því rétt að enda þessa ritgerð um hið þýðingarmesta mál vort með þeim. Gladstone og Bismarck. i. William E. Gladstone (f. 1809) sat fyrst á þingi 1832, en I. marz 1894 hélt hann síðustu þingræðu sína. Allan þann tima hafði hann með óþreyt- andi elju og samvizkusemi starfað að öllum þeim málefnum, er voru á dagskrá hinnar ensku þjóðar. Hann varð fyrst ráðgjafi 1844 og sat þá i ráðaneyti Peels en eftir 1850 sat hann i öllum ráðaneytum frjálslynda flokksins; hann var fyrst fjármálaráðgjafi, en 1868 varð hann ráðaneytis- forseti og þvi embætti hélt hann jafnan síðan, þá er flokksmenn hans réðu meiri hluta atkvæða. Hann skifti mjög oft um stefnu; fyrst var hann rammur afturhaldsmaður, siðan hvarf hann frá þeim flokki og fylgdi þá engri ákveðinni stjórnmálastefnu um hríð, loks varð hann forvígis- maður frjálslynda flokksins og eftir því sem hann lifði lengur varð frjáls- lyndi hans meira og víðtækara. Maðurinn hélt beinlinis áfram að þrosk- ast fram á níræðisaldur. Pað er auðvitað gjörsamlega ómögulegt að gefa mönnum hér nokkra hugmynd um hið jötunvaxna starf, er hann hefur int af höndum í þjónustu mannúðar og menningar. Menn verða að gæta þess, að það 60 ára tímabil, sem hann vann að opinberum málum, er vafalaust eitt- hvert hið langmerkilegasta og þýðingarmesta timabil sögunnar, sérstak- lega að því er England snertir. Pau höft og þau tjóðurbönd, sem hin enska þjóð hefur slitið af sér á því timabili, eru afarmörg. Vald aðals- manna og auðkýfinga hefur rýrnað þrátt fyrir alt og alt; samvizkufrelsið hefur aukist og styrkst; skólamálum, tollmálum, fjármálum hefur verið hrundið í miklu betra horf, en þau voru áður í; kosningarétturinn hefur verið rýmkaður og fjöldamargt annað mætti telja, ef tími og rúm leyfði. Og venjulegast hefur Gladstone verið fremstur í fylkingu þeirra, sem umbæturnar hafa heimtað. Pað er að vísu satt, að hann í byrjuninni var andvígur flestum þessum málum og um eitt skeið var hann mjög i vafa um, hvorum flokknum hann ætti að fylgja; en þegar hann eftir langa og samvizkusamlega umhugsun hafði gjört upp reikningana, þegar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.