Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 87

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 87
§7 Bismarck kvað eigi hafa verið frábærlega mælskur maður eftir venju- legri merkingu þess orðs. Honum var stirt um mál og varð oft að berjast langa lengi við að koma orðunum út. En þó þótti hann jafnan hinn tilkomumesti ræðumaður og bar margt til þess. Pað fyrst, að hann var höfði hærri en aðrir menn og andlitið svo mikilúðlegt, að eigi var öðru líkara en hann væri jötunkynjaður að langfeðgatali. Samlíkingar hans voru kjarnyrtar og hnittilegar og háðsyrði hans svo hvöss og misk- unnarlaus, að mótstöðumenn hans á ríkisþinginu voru beinlínis hræddir við hann. Röddin var hás og sterk. Svo sem kunnugt er, varð Bismarck að víkja úr völdum 1890 vegna óvildar milli hans og hins unga keisara Vilhjálms II. Vilhjálmur keisari er sundurgerðarmaður mikill, hávaðasamur og metnaðargjarn, og þótti honum sem hinn gamli »járnkanzlari« vildi bera sig ráðum, og er Bismarck sá, að keisarinn yildi einn öllu ráða, leiddist honum þófið og lagði niður völdin. Pað sem eftir var æfinnar hafðist hann við á bú- garði sinum norður i Láenborg; en jafnan lagði hann orð í belg um stjórn- málin og gjörði keisara og ráðgjöfum hans alt til skapraunar. Þegar hann dó 30. júlí síðastliðið sumar, voru rniklar sorgarhátíðir haldnar víðsvegar um Rýzkaland og jafnvel Vilhjálmur keisari viðurkendi þá, að hann hefði verið »verkfæri guðs til þess að sameina Pýzkalands. Eftir dauða þeirra Bismarcks og Gladstones siðast liðið sumar sáust oft í blöðum og timaritum langar rökræður um það, hvor þeirra hefði verið meiri maður. Leirri spurningu svara menn auðvitað eftir því, hverja merkingu þeir leggja i orðin »mikill maður«. Bismarck hefur vafalaust haft stórfeldari gáfur en Gladstone; persóna hans er svo stór- skorin og afreksverk hans svo mikilfengleg, að þau hljóta að ginna menn til undrunar og aðdáunar. Gladstone hefur eigi jafnmikil áhrif á imyndunaraflið; engum dylst, að hann er miklu vandaðri og betri maður, að verk hans eru miklu heillavænlegri og þýðingarmeiri fyrir frelsi og menningu þjóðanna; en það er nú ekki altaf réttlátt, að dæma um mikil- mensku manna eingöngu eftir því, hve þýðingarmikil verk þeirra hafa verið. Engum blandast vist hugur um, að Guttenberg, er fann prent- listina, hafi unnið mannkyninn þarfara verk en t. d. Napóleon mikli; en þrátt fyrir það mun engum heilvita manni koma til hugar, að telja Guttenberg meiri mann en Napóleon. Arni Pálsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.