Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 94

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 94
94 magnsins út á við, enda hefur verið unnið að því með hinu mesta kappi og skarpskygni, einkum á síðari hluta þessarar aldar. Ein- hverja hina fyrstu og merkilegustu uppgötvum í þá átt gjörði danskur maður, Örsted að nafni, árið 1820. Hann tók eftir því, að rafmagnsstraumur hreyfir segulnálina (kompásinn), og fann þannig sambandið milli rafmagns og segulmagns. Eftir það komst svo góður rekspölur á rannsóknirnar um verkanir rafmagnsstrauma, enda hafa þær eigi borið litla ávexti. Á síðustu árum hafa verið gjörðar margar merkilegar uppgöt- vanir í rafmagnsfræði, einhver hin merkilegasta er sú, er ítalskur maður, Marconi að nafni, gjörði fyrir skömmu. Hann fann ráð til þess að að senda rafskeyti gegnum loftið, án þess að hafa nokk- urn ritsíma (fréttaþráð); hann notaði til þess rafmagnssveiflur eða bylgjur, sem berast gegnum loftið eins og hljóðbylgjurnar. Hann bjó svo til verkfæri, sem sendir þessar bylgjur af stað, og annað, sem segir til rafmagnssveiflanna, er þær koma, öldungis eins og eyra mannsins segir til, þegar hljóðbylgjur berast til vor. Uppgötvun þessi er þó eigi fullkomin enn þá, sem von er til, svo að ekki er gott að vita, að hverju haldi hún kann að koma. Einhver hin mikilsverðasta af öllum þeim nýjungum, er raf- magnsfræðin hefur fært oss, er þó »aflvakinn« (Dynamo). Það er vél, sem getur breytt afli í rafmagn, eða rafmagni í afl, eftir því sem á stendur. Sá sem fyrstur smíðaði aflvaka, er var að nokkru nýtur, hét Gramme; síðan eru ekki liðin nema 25 ár, en nú eru þessar vélar notaðar um allan heim hundruðum þúsunda saman. Menn geta reiknað nákvæmlega út, hvernig hver vél á að vera, til þess að gjöra það gagn, sem henni er ætlað. Þær eru nú notaðar hvervetna, er menn þurfa á sterkum rafmagnsstraumum að halda, hvort heldur sem er til vísindarannsókna eða til að knýja vinnu- vélar, við raflýsing, rafhitun o. fl. Áður fyr notuðu menn »Gal- vansvirki«, en það er bæði dýrara og að mörgu leyti óhentugra, enda eru þau nú óðum að leggjast niður. Gufuvélin hefur verið aflvél þessarar aldar. Hún hefur þann ókost, að hún eyðir miklum kolum, en þau eru dýr. En aflvakinn mun verða meginvél 20. aldarinnar, því að hann eyðir engum kolum, heldur er hann venjulegast knúinn af vatnsafli. Vatnsaflið kemur svo að segja beint frá sólinni, enda er hún uppspretta allrar hreyfingar og alls verkmagns jarðarinnar. Sólin hitar nefni-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.