Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Side 101

Eimreiðin - 01.01.1899, Side 101
IOI Stórveldi framtíðarinnar. (Lauslega þýtt úr amerisku tímariti.) feir voru tímarnir, að það var aðalstarf stjórnmálamannanna í Ev- rópu að gæta jafnvægisins innan takmarka þeirrar álfu. Peir tímar eru nú löngu liðnir; nú á tímum er það vandráðnasta gátan í stjórn- málum stórþjóðanna, hvernig nýlenduvaldinu skuli haldið í jafnvægi — eða hrundið úr skorðum. En jafnvel þótt Evrópumenn séu nú fyrir löngu orðnir ásáttir um, að þetta sé eðlilegt og sjálfsagt, var þó engu likara en þeim væri rek- inn löðrungur, þegar Ameríkumenn nú fyrir skemstu létu á sér skilja, að þeim þætti nú setið meðan sætt væri og að þeir vildu gjarna fá sinn skerf af krásunum. Petta tiltæki Bandafylkjanna hefur þegar veiklað þá trú til muna, að yfirráðin yfir heiminum muni um aldur og æfi hvíla í skauti Evrópumanna einna. Friðarsamningarnir í París eru ljósastur vottur þess, að Bandamenn eru staðráðnir í því að fylgja sleitulaust þeirri stefnu, er þeir nú hafa tekið sér og má vel vera, að af þvi rísi þau tíðindi, sem enginn getur séð fyrir að svo komnu máli. Þeir sem hingað til hafa aldrei veitt Ameríku neina eftirtekt og aldrei talið hana með stórveldunum, skilja ekki neitt í neinu og spyrja: Hvað knúði Bandamenn fram á skeiðvöllinn? Hvað æsti þá til ófriðar? Hver eru þau kynjaöfl, er alt í einu hafa umsnúið allri stefnu þjóðar- innar í utanríkismálum ? Það er að vísu satt mál, að breytingin var snögg, ■— svo snögg og 'hastarleg, að jafnvel Ameríkumenn sjálfir urðu steinhissa. Hinum grunnsæjari mönnum virtist svo sem þjóðin hefði snarað frá sér í einu vetfangi þeirri grundvallarreglu, sem hún hafði fylgt frarn á þann dag, þeirri reglu, að láta öll þau mál afskiftalaus, er eigi vörðuðu Ameríku beinlínis. Nú var það alt í einu orðið markið og miðið, að brjóta undir sig lönd og lýði, og menn tóku þegar til starfa áður en þeir höfðu áttað sig fyllilega. En það er hin mesta fjarstæða, að þessi breyting sé svo snögg sem mörgum hefur virst. Um langan aldur höfðu duldir kraftar og undirstraumar beinst í þessa átt og allir þeir, sem nokkuð verulega þekkja þjóðlíf og hugsunarhátt Ameríkumanna, hafa lengi verið þess fullvissir, að þeir myndu eigi um aldur og æfi láta sér lynda, að stór- veldin í Evrópu léku lausum hala um Asíu og Afríku, án þess að taka nokkurt tillit til Bandafylkjanna. Menn klifa oft á því, að Washington gamli hafi margbrýnt það fyrir löndum sínum, að stofna sér eigi i deilur við erlendar stórþjóðir, heldur beina öllum kröffum sínum að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.