Eimreiðin - 01.01.1899, Page 105
105
allan og er þvi sizt að óttast, að menning þeirra muni doðna upp af
tilbreytingarleysi, en hitt er vafarmál, hvort þjóðerni þeirra reynist svo
sterkt, að það leysist eigi i sundur, þá er tímar líða fram. En ef þjóð-
erni Engilsaxanna helzt, þá bera þeir efalaust ægishjálm yfir öllum öðram
þjóðum, bæði Slöfum og öðrum. Og hvort mundi Ame'ríku þá væn-
legra að leita bandalags við England — eða Rússland.
Engin ástæða er til að efast um, að þjóðareinkenni Ameríkumanna
haldist eigi á komandi öldum; þeir halda sjálfsagt elju sinni og fram-
kvæmdaþrótt. En vegna þess að nú er valla sá landskiki til, að eigi sé
hann einhverju stórveldi háður, verða Bandamenn fremur að ryðja sér
braut með verzlunarframkvæmdum en landvinningum. í*ess vegna verða
þeir að halda fast fram þeim tveimur aðalkröfum, að verzlunarfrelsið
verði ótakmarkað á öllum meginstöðvum verzlunarinnar og að full laga-
trygging verði veitt fyrir því, að verzlunin verði eigi heft af róstum
og stjórnleysi.
En hvorki Slafar né rómönsku þjóðirnar hafa sýnt, að þær hafi
vilja eða mátt til þess, að fullnægja þessum kröfum. Bæði á Frakklandi
og Rússlandi fylgja menn nú hinni svæsnustu tollverndunarstefnu, og
öllum er kunnugt, hvernig Spánverjum hefur gengið að halda á friði
og spekt í sinum nýlendum.
England er eina landið, sem hefur haft krafta í köglum til þess,
að varðveita reglu og lögtrygt skipulag í nýlendum sínum og til þess
að tryggja verzlunina fullkomlega. En þar að auki eru Englendingar
eina þjóðin, sem halda því fram, að verzlunarfrelsið eigi að vera ótak-
markað alstaðar, og þar kemur þeim ágætlega saman við Amerikumenn;
það væri báðum þjóðunum jafnmikið óhagræði, ef t. d. kínverski markað-
urinn lenti í klónum á þeim þjóðum, er halda fram tollverndun og tak-
mörkuðu verzlunarfrelsi.
Alt bendir þvi í þá átt, að Englendingar og Ameríkumenn muni
innan skamms festa með sér bandalag, til þess að vernda menningu sína
og áhugamál, — vernda þau fyrst og fremst gegn hinum skæðasta
óvini, hinu rússneska stórveldi.
Arni Pálsson.