Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Page 115

Eimreiðin - 01.01.1899, Page 115
á honum fyrir hirðuleysið. Því ekkert getur haft eins spillandi áhrif á mál vort eins og það, ef helztu rithöfundar vorir og skáld afbaka það. Þá verður alþýðan að skoða sem fyrirmynd, er óhætt sé að líkja eftir, og getur því slæmt mál hjá þeim haft hættuleg eftirköst. »Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það.« En þótt vér þannig höfum talið oss skylt að finna að ýmsu í þessum ár- gangi »Bókasafns alþýðu«, þá ber eigi síður hins að geta, að hann er að öllu samantöldu mjög eigulegur, og hinn ytri frágangur hans (prentun, pappír og myndirnar) svo prýðilegur og smekklegur, að hann er útgefandanum, herra Oddi Bjdrnssyni, til stórmikils sóma. Verðið er líka svo lágt, að undrum sætir, og óhugsandi að útgefandinn geti orðið skaðlaus, nema kaupendafjöldinn sé mjög mikill. Þetta ættu menn að kunna að virða og þvf reyna að styðja ritsafnið af alefli. Það væri töluverður missir fyrir íslenzka bókagerð, ef það yrði að hætta sökum kaupendafæðar, eða að einhverju leyti breyta ffá því horfi, sem það nú er í. ÞORKELL BJARNASON: um Þorlák Þórhallason hinn HELGA (fyrirlestur). Rvík 1898. Fróðlegur og skemtilegur ritlingur, sem skýrir dýrlingadýrkun íslendinga, trúarlíf og menningarástand á 12. öld. GUNNSTEINN EYJÓLFSSON: TVÖ VESTURÍSLENZK SÖNGLÖG. Khöfn 1898. Lög þessi eru við kvæðin »Sólu særinn skýlir* eftir Stgr. Thor- steinsson og »Sumarnótt á heiði« eftir Jón Ólafsson. Segja þeir, sem vit hafa á, að þau séu lagleg, eða meira en það, og ættu allir íslenzkir söngmenn að kaupa þau og kynna sér. Það er ekki svo mikið, sem út kemur eftir íslenzk tónskáld, að ekki sé sjálfsagt að leggja rækt við það litla, sem birtist af því tægi. STEFÁN B. JÓNSSON: STJARNAN. Lftið ársrit til fróðleiks og leið- beiningar um verkleg málefni. II. ár. Winnipeg 1898. Auk almanaksins eru í ritlingi þessum ýmsar smáritgerðir og uppdráttur Manítobafylkis. Er þar meðal annars ritgerð um alifuglarækt, um kartöflur, um súrheysverkun, um verðgildi fóðurs og fleira ffóðlegt. Þó virðist oss þessi árgangur yfirleitt tæplega jafnast við 1. árg. að efni; en hinn ytri búningur hans er aftur stórum betri og mál og prófarkalestur miklu vandaðra, þó enn mætti betur vera. ÍSLENDINGASÖGUR. 20.—24. Búið hefir til prentunar Valdimar Ás- mundarson. Rvík 1898. í þessum 5 heftum eru þessar sögur: Svarfdœla saga, Vallaljóts saga, Vdpnfirðinga saga, Flóamanna saga og Bjarnar saga Hitdœlakappa. Sögurnar eru skemtilegar, frágangurinn góður og verðið lágt. Hvað vilja menn hafa það meira? GUÐMUNDUR FRIÐJÓNSSON: EINIR. Nokkrar sögur. Rvík 1898. í bæklingi þessum eru fjórar sögur. Heitir hin fyrsta þeirra tSkókreppa« og er mestmegnis lýsing á gömlum karli og æfiferli hans. Hann elst upp á sveit, föður og móðurlaus, verður mesti dugnaðar og iðjamaður, á fjölda barna og elur upp tvö vandalaus börn að auki. En er þó jafnan mesti mæðumaður og fer aftur á sveitina í elli sinni og er að síðustu holað í jörðina í útjaðri kirkju- garðsins án allrar viðhafhar, eins og lög gera ráð fyrir með sveitlægan kararfausk. Ýmislegt er allvel sagt í sögu þessari, en þó kveður lítið að henni. Hún er mjög lauslega saman sett og í henni miðri útúrdúr, sem ekkert kemur sjálfri 8*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.