Eimreiðin - 01.01.1899, Síða 120
120
Vér trúum ekki öðru en að mörgum íslendingi mundi þykja gaman að
lesa »Heimhug«, þar sem hann auk annars sinnir íslandi af svo mikilli alúð og
er ritaður á máli, sem er líkara íslenzku en nokkurt annað útlent mál. Það er
líka hægt [að veita sér þetta, því hver árgangur kostar ekki nema 2 krónur, og
kemur þó bkðið út á hverjum laugardegi.
ÍSLENZK NÚTÍÐARSKÁLD, bókmentasagan eftir J. C. Poestion, sem getið
var í Eimr. síðastliðið ár, hefir vakið mikla eftirtekt i útlöndum og mesti sægur
af ritdómum um hana komið hingað og þangað. Skulum vér úr öllum þeim
fjölda nefha eina tvo, er einna mest kveður að. Er annar þeirra f »AUgemeine
Schweizer Zeitung* 21. ág. 1898, og mun vera eftir prófessor A. Heusler, sem
ferðaðist á íslandi héma um árið. Sver ritdómurinn sig greinilega í hans ætt,
svo vel er hann ritaður og af svo mikilli þekkingu. Hinn ritdómurinn er í
»Wiener Abendpost« 19. okt. 1898, eftir Bruno Walden, nafnkunnan bókmenta-
fræðing í Austurríki. Hælir hann íslenzku skáldunum mikið, og segir að bók
Poestions hafi ómótmælanlega unnið þeim hefðarsæti í »myndasal heimsbók-
mentanna« og þá um leið vakið virðing og vinarþel til hinna vel gefnu eyjarbúa
(íslendinga) hjá hinni fjarlægu frændþjóð þeirra (Rjóðverjum).
RITDÓMAR UM ÍSLENZK RIT. 1 >Jahresbericht úber die Erscheinungen
auf dem Gebiete der Germanischen Philologie« fyrir 1897 eru ritdómar um hina
dansk-íslenzku orðabók Jónasar Jónassonar og hina ensk-íslenzku orðabók G. T.
Zoega, og vel yfir þeim látið. Tar er og ritdómur um Eimreiðina III og annar
sérstakur um bréf Harboes ffá íslandi, sem vóru f þeim árgangi hennar. Um
Eimreiðina segir þar svo: »Þetta nýja tímarit er svo auðugt að efni (og ritað af
hinum helztu íslenzku höfundum), að sjálfsagt er að mæla með þvf við alla,
sem að einhverju leyti hafa hug á að kynnast íslandi eða íslenzkum ffæðum. í
þvf eru pólitiskar ritgerðir, bókmentaritgerðir, ritgerðir sögulegs efnis, skáldskapur
i bundnu og óbundnu máli, þýðingar á útlendum ritgerðum og ritdómar og
smágreinar um nýjar bækur. Vér verðum eindregið að ráða fræðafélögum vorum
og bókaútgefendum, að senda ritstjóranum, háskólakennara, dr. Valtý Guðmunds.
syni, þær bækur, er að einhverju leyti snerta ísland eða íslenzk efni, og mun
hann sjá um, að um þær verði kveðinn upp óhlutdrægur dómur.«—Sá, er þetta
hefir ritað, virðist ekki hafa verið í neinum vafa um, hvert erindi Eimreiðin teldi
sig eiga til lesenda sinna.
SKEMTIFERÐALEIÐIR Á ÍSLANDI, yfir Kjalveg frá Sauðárkrók til Reyk-
javikur heitir bók eftir höfuðsmann Daniel Bruun, sem hið íslenzka Ferðamanna-
félag hefir gefið út á dönsku (»Turistrouter paa Island, Tværs over Kolen fra
Sodekrog til Reykjavík« Khöfn 1899). Er sú bók lipurt og vel rituð og í henni
góð lýsing á þessari leið og þvf, sem á henni er að sjá nýstárlegt fyrir útlenda
ferðamenn. í henni er og íjöldi af góðum myndum og hinn ytri búningur bók
arinnar hinn bezti. V. G.