Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1907, Side 43

Eimreiðin - 01.01.1907, Side 43
43 Pegar l’yrnar komu út í fyrra sinni, flugu þeir út á örstuttum tíma. I’að sýnir öllu öðru betur, hve kvæði hans náðu fljótt lýð- hylli á Islandi. En hvað ollif Var það efnið eða búningurinn? Efalaust hvorttveggja. Pess voru víst ekki dæmi með þjóð vorri, að jafn heiftúðugar og harðsnúnar árásir væru gerðar á guðs og manna lög sem í kvæðum hans. Kirkjuverðir og þjóðfélagsstoðir gátu ekki þagað við þeim. Pau vóru svo úr garði ger að list og krafti. Kurr þeirra, mögl og nöldur jók á þeim umtal og eftirtekt, bæði í blöðum og manna í milli. Ungir og frjálslyndir mentamenn unnu þeim fyrir róttæki þeirra og byltingahug. »Einkum þótti fjölda okkar (o: stúdenta) vænt um þau fyrir það, hve hvasslega hann réðist á hjátrú og hleypidóma«, segir Porsteinn Gíslason í Óðni (I. 6). Efnið hefir því átt nokkurn hlut í að ryðja kvæðum hans til rúms. En það eitt var ekki ærið til að afla þeim svo almennrar þjóðhylli. Eg hefi það fyrir satt, að blaðstjórum og tímaritaút- gefendum þyki lítill búhnykkur í að skjóta skjólshúsi yfir vantrúar- greinir á blaðsíðum sínum. Af því má ráða, að kaupendum þeirra er ekki mikið gefið um slíkan varning. Kvæði Porsteins hafa því ekki komist, að kalla má, í hvers manns hug, sakir árása þeirra á trú og þjóðfélagsskipun. Að vísu eru þau um miklu fleira en þess konar efni. En þau kvæði hans, sum lífsádeiluljóð hans að minsta kosti, eru svo vitur og þrungin að efni, að það fá ekki nema mentamenn metið gildi þeirra, þeir einir notið þeirra. Ekkert skáld verður lýðkært af slíkum skáldskap, Porsteinn ekki fremur en önnur. í>á er ekki öðru til að dreifa en búningnum. Hann hefir riðið baggamuninn og mest og bezt fengið Þorsteini hylli og vináttu allra íslenzkra ljóðavina meðal alþýðumanna. Pað hefir sjálfsagt verið tekið fram þúsund sinnum eða oftar, að Islendingar hefðu miklar mætur á lipru og dýru rími — og er það hverju orði sannara. Búningurinn hefir löngum borið efnið ofurliði í íslenzkum kveðskap, honum til mesta tjóns. Það hefir leikið orð á því um íslendinga, að þeir væri ekki vöruvandir, hirðulausir um alla verkun á þeim. Svipað hefir brunnið við í sumum greinum bókmentanna, bæði að fornu og nýju, einkum í kveðskapnum. Par hefir alt orðið að þoka fyrir dýrum bragar-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.