Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1907, Blaðsíða 51

Eimreiðin - 01.01.1907, Blaðsíða 51
5i er báðu sér ölmusu. Höfðingjarnir lifðu í sukki og svalli, gerðu veizlur miklar og leystu hvern annan út úr hverju boði með dýr- indisgjöfum. Má hér minna á erfið, er þeir synir Hjalta á Hofi gerðu eftir föður sinn og næstum hálft annað þúsand manna sátu — »ok voru allir virðingamenn með gjöfum brott leiddir«, segir Landnáma. Pá má og drepa á erfið, er Ólafur pá drakk eftir föður sinn og miklu fleira. Pessar frásagnir af hátterni höfðingj- anna og ákvæði laganna um ölmusubænir öreiganna virðast sýna, að munurinn á efnahag manna hafi verið miklu meiri á þeim dögum. Pað er víst lítil ástæða til að harma horfnar tíðir að þvf leyti. Pað er og einkennilegt, að hann, jafnaðarmaðurinn, syngur Vestmönnum svo háróma lofsöng. Hvar er auðvaldið ægilegra í víðum heimi en í ríki auðjarlanna vestrænu, þeirra Rodrefellers og félaga hans ? Og litlar líkur eru til, að þær bárur fari veltandi að vestan, er steypi stoðum og stöllum þjóðfélaga Norðurálfunnar til neðstu grunna eða það neistaflug berist þaðan, er kveiki í musteris- turnunum, svo að þau brenni til kaldra kola og nýjar og veglegar hallir rísi í staðinn.1 Og hitinn hefir spilt skáldskap hans, sem minst var á áðan. Hann hefir orðið myndminni en ella. Gáum að kvæðinu ,»Á spí- talanum«. Par sést það bezt, hvernig hann skemmir kvæði hans. Par er frásögn af lífinu á spítalanum, nokkuð langdregin að vísu, en það er samt mynd. Vér sjáum Pétur, er hann vökvar leiðið úti í garðinum og liggur banaleguna. En vér sjáum ekki eins vel óttann og skelfinguna, er gagntekur hann á síðustu stundu, og það sést alls ekki, að það sé hræðslan við kvalir og logbranda Hel- vítis, er hann pínist af. Pað segir Porsteinn oss, en það var ein- mitt það, sem þurfti og átti að sýna. Hann er svo reiður, að hann missir pentvöndulinn og þrumar af öllu afli gegn þeirri trúarkreddu, er átti sök á þeim hörmungum, er hann ætlaði að sýna. Lítum aftur á »Orlög guðanna«. Paö er að vísu af- bragðskvæði — snjallara kvæði naumast verið ort á íslenzku máli. En það má að minsta kosti ekki svæsnara vera, í fyrra helmingi þess, svo að það óprýði ekki svo fjörugt og ferðmikið kvæði. En þegar hann er lokinn við Ólaf Tryggvason, þetta glæsilega, en grimmlynda mikilmenni, sem hann syngur heift- 1 »Mundi höf. hafa ort það kvæði nokkuð öðruvísi nii« (1895) segir Þorsteinn Gíslason í Eimreiðinni I. bls. 124. 4:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.