Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 3

Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 3
159 finnanlegan uppeldisskort í þjóðlífi voru, þá lagði hann í því efni svo góðan grundvöll, að vonandi er, að barnabrek vor hverfi æ meir og meir, eftir því sem árin færast yfir oss og vér komumst af gelgjuskeiðinu, sem vér enn erum á. Það sem mönnum verður starsýnast á í starfsemi Jóns Sig- urðssonar, er barátta hans fyrir landsréttindum íslands, enda var þar orustan hörðust, svo mest bar á mikilmenninu. Er þar fyrst að telja afskifti hans af endurreisn alþingis. Baldvin Einarsson og fleiri höfðu áður hrundið því máli á stað, en Jón lagði þar á smiðshöggið, með því að grípa tækifærið, er konungaskifti urðu og Kristján VIII. kom til valda, og færa honum ávarp og heilla- óskir frá Islendingum í Kaupmannahöfn, þar sem farið var fram á stofnun fulltrúaþings á íslandi og fleiri umbætur. Tók konungur því hið bezta og ákvað skömmu síðar, að alþingi skyldi endur- reist, þó stjórnarráð hans væri því eiginlega mótfallið, en yrði að láta sér það lynda og hlíta boði einvaldskonungsins. En þegar endurreisn þingsins var fengin, urðu mjög skiftar skoðanir um fyrirkomulag þess og hvar það skyldi haldið. Vildu flestir, að það væri haldið á Pingvöllum og lagað sem mest eftir hinu forna alþingi, eins og konungur hafði líka bent á, og beittust margir af hinum merkustu mönnum landsins fyrir því, að svo yrði, og vörðu mál sitt af miklu kappi. En Jón Sigurðsson sagði, að þó tiljinnmgin mælti með Þingvöllum, þá mælti öll skynsemi og forsjálni með Reykjavík og að þingið yrði lagað eftir fulltrúa- þingum erlendis, sem betur ætti við vora tíma. Og svo vel varði hann mál sitt, að skoðun hans varð algerlega ofan á, þó mörgum þætti súrt í broti. Við næstu konungaskifti, er Friðrik VII. kom til valda og af- salaði sér einveldinu (1848) kom þó fyrst verulega til kasta Jóns Sigurðssonar. Vildu Danír þá innlima ísland í Danmörku og láta íslendinga hafa löggjöf og stjórn sameiginlega við hana, þannig að þeir ættu nokkra fulltrúa (6—7) á ríkisþingi Dana. Gegn þess- ari stefnu hófst Jón Sigurðsson handa og sýndi fram á, að ísland ætti forn landsréttindi, og samkvæmt þeim gæti ekkert orðið ákveðið um samband þess við Danmörku nema af íslendingum sjálfum á fulltrúaþingi í þeirra eigin landi. Jafnframt krafðist hann þess, að Island fengi innlenda löggjöf og stjórn út af fyrir sig og frjálst atkvæði um samband þess við Danmörku, og hlutdeild í löggjöf og stjórn þeirra mála, er menn kynnu að koma sér saman 12'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.