Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Page 9

Eimreiðin - 01.09.1911, Page 9
íslandi, og fal alþingi að ákveða, hversu verja skyldi landinu til gagns og þjóðþrifa. Jón Sigurðsson lézt 7. des. 1879 á 69. aldursári. Fór bráða- birgða-útför hans fram í Khöfn, þar sem hann hafði jafnan átt heima, frá því hann kom þangað seui stúdent, og var hún gerð með svo mikilli viðhöfn, sem nokkur kostur var á. Sýndu Danir þá, að þeir kunnu að meta mikilmennið, þótt örðugt hefði reynst í þeirra garð oft og tíðum, því við útförina mættu bæði fulltrúi konungs, ráðherra íslands, forsetar rikisþingsins og fjöldi ríkis- þíngsmanna, og hafði ríkisþingið gert fundarfall, til þess að svo mætti verða. Á kistuna lögðu landar Jóns í Khöfn silfurkrans með skildi innan í, og var á hann letrað (auk nafns o. s. frv.): » Óskabarn íslands, sómi þess, sveró og skjöldur«. Jón Sigurðsson var giftur frændkonu sinni, Ingibjörgu Ein- arsdóttur, og voru þau bræðrabörn.. Var hún hin ástríkasta og bezta eiginkona og samtaka manni sínum í hvívetna. Og svo mikið varð henni um lát hans, að hún lagðist rúmföst tveim dög- um síðar og reis ekki framar úr rekkju, en dó á 9. degi (16. des. 1879) °§ vajð honum því samferða í gröfina. Pví segir Matthías: Og brúðurin enn við hans aðra hönd sem elskan og trúfestin sefur. Næsta vor (1880) voru lík þeirra hjóna flutt til íslands og jarðsett á kostnað landsins í Rvíkurkirkjugarði með allri þeirri við- höfn, sem yfirleitt varð í té látin. Hefði hún ekki getað verið meiri, þó um þjóðhöfðingja hefði verið að ræða, því öllu var tjaldað, sem til var. Öllum var ljóst, að nú hafði ísland mist sinn bezta og ágætasta son, og sorg manna var því mikil, almenn og einlæg. Pá kvað Matthías: Fjallkonan hefur upp harmakvein: »Hnigin er stoðin bezta, komið er heim, að bera sín bein, barniö mitt afreksmesia«. Fjallkonan syngur sorgarlag: »Sárt er mitt hjarta lostið; skjöld minn og sverð ég sé í dag sundur í miöju brosiiö«.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.