Eimreiðin - 01.09.1911, Side 17
173
Sérstaklega var það hinn nafnkunni heilsufræðingur Pettenkofer,
sem hélt þessu fram. Hann hafði í mörg ár verið að færa rök
fyrir því, að kólera og taugaveiki orsökuðust af spiltu jarðvegs-
lofti, sem streymdi upp í húsin, og alt væri komið undir því, hve
hátt eða lágt grunnvatnið stæði. Uppgötvun Kochs virtist ætla
að kollvarpa þessari kenningu hans, og þessvegna var honum um-
hugað um, að sýna fram á sakleysi kólerubakteríunnar hans Kochs,
Og hann gjörði sér lítið fyrir og saup á kjötseyði, sem kóleru-
bakteríur voru ræktaðar í. Allir héldu, að þetta mundi klára karl-
inn, en honum varð lítið meint af, fékk aðeins niðurgang í nokkra
daga og varð síðan gallhraustur og trúði betur sjálfum sér en Koch.
En bæði Koch og aðrir læknar þóttust sannfærðir um, að karl
hefði fengið kóleru, en aðeins væga, og seinna sannaðist líka, að
Koch hafði rétt að mæla. Magasýran getur um hríð komið í veg
fyrir að bakteríurnar geti orðið hættulegar, en við langvinnar árásir
þeirra stenzt hún ekki og líkaminn veikist alvarlega. — Eftir þennan
útúrdúr hverfum vér þar að, sem fyr var frá horfið. Hugsum
okkur, að bakteríur ætli sér að komast ofan í lungu á manni.
Bæði í nefi, munni, koki og barka ganga jafnan stríðir stormar.
ýmist að ofan eða neðan, sem andardrátturinn veldur eða hósti
og ræskingar og hafa þeir fellibyljir feykt í loft upp heilum her-
skörum af óvinaher. En ekki eru enn allar tálmanir á þeim veg-
um upptaldar. Bæði í nefinu, barkanum og víðar er öll slímhimn-
an þakin þéttum skógi af bifhárum, svo smáum, að þau sjást ekki
nema í smásjá, en fyrir bakteríunum líta þau út eins og lágvaxin
sef, sem stöðugt eru á hreyfingu fram og aftur, líkt og kornstengur
á akri í vindblænum, »er bylgjum slær á rein«. Hreyfing bifhár-
anna miðar til þess að sópa út á við öllu óhreinu, sem leitar inn.
Pannig má t. d. oft sjá, hvernig bifhárunum tekst að sópa burt
ryki, sem sogast hefur niður í andfærin. Margir hafa líklega veitt
því eftirtekt, hvernig slímið úr kverkunum, sem vér ræskjum upp
á morgnana, er dökkleitt, stundum kolsvart á litinn, þegar vér
kvöldið áður höfum setið í tóbaksreyk eða verið á dansleik, þar
sem mikið ryk var í loftinu. Bifhárin hafa verið að bisa við það
alla nóttina, meðan vér sváfum, að flytja rykkornin, og ásamt
þeim ótal bakteríur, upp úr lungunum upp eftir lungnapípum og
barka.
En þrátt fyrir allar þessar hugvitssömu varnir tekst þó bak-
teríunum að komast inn í líkamann. Ymsra orsaka vegna geta
12