Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Page 23

Eimreiðin - 01.09.1911, Page 23
179 mannafórn miklu vænlegri til hags, en öll þau mannsmorð, sem hernaður og stríð eru völd að. — Náttúran er bezti læknirinn, og hún hefur kent okkur lækn- unum það litla, sem vér kunnum. Náttúran kendi Jenner og Pasteur bólusetningu gegn sjúkdómum og Roux og Behring blóð- vatnslækningarnar. Náttúran hefur gefið hverjum okkar ákveðið mótstöðuafl gegn sjúkdómum. Hún lætur hvern einstakling búa sjálfum sér til mótefni gegn allskonar bakteríueitri. Sumum gefur hún þennan hæfileika í ríkum mæli, en öðrum skamtar hún úr hnefa. Jenner, Pasteur, Roux og Behring, sem fundu upp bólu- setningu og blóðvatnslækningar gegn bakteríusjúkdómum, gengu skrefi lengra en náttúran og létu blóð dýra, sem orðin voru ómóttækileg fyrir vissum sjúkdómum, lækna þá, sem vantaði nóg mótstöðuafl. Mannsblóð væri sjálfsagt eðlilegra að nota. Fyrir rúmri hálfri öld var mikið um það ritað, og margar tilraunir gjörðar til að lækna sjúklinga með blóði heilbrigðra manna. Pessar til- raunir hafa að miklu leyti strandað á því, að svo miklum vanda er bundið að leiða blóð úr æð eins manns yfir í æðakerfi annars. Nýlega hefur dr. Carrel við Rockefelierstofnunina tekist að sam- eina svo æðar tveggja manna, að blóðið geti streymt óhindrað frá einum til annars. Hefur honum hepnast að bjarga með því lífi manns, sem kominn var nær dauða af blóðleysi. Eflaust munu læknar geta hagnýtt sér þessa aðferð Carrels í ýmsum sjúkdómum, og fyrir hana mun mörgum geta gefist kostur á að bjarga lífi meðbræðra sinna, með því að fórna þeim nokkru af hinu dýrmæta blóði sínu. Pær blóðsúthellingar eru ákjósanlegri en margar aðrar, sem nú tíðkast. Af öllu því, sem að ofan er ritað, sést, að ég hafði nokkuð til míns máls, þar sem ég sagði hér á undan, að líkamanum væri ekki fisjað saman, og að margt mótdrægt gæti hann þolað, án þess meðul væru fengin úr apótekinu. Pví meir sem vér getum skygnst inn í leyndardóma líkams- byggingar vorrar, því meir sem vér höfum lært að þekkja okkur sjálfa, því meiri lotningu fáum vér fyrir náttúrunni. Vér þurfum ekki að vera að seilast eftir neinum furðuverkum til að dást að, því vor eigin líkami er eitt mesta furðuverkið. Heldur ekki þurfum vér að vera að heimta neinar ytri opinberanir eða gamlar kraftaverkasögur úr innblásnum helgibókum, því óvíða rekum við

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.