Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 31

Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 31
i87 þar næst ?nœtti pab vera ástœða fyrir oss, að lina pær kröftir pví meir, sem vér sæjum, ab stjórninni og D'ónum væri alvara ab hætta ab ásæl- ast sjálfstæbisréttindi vor í eigin efnum. ... Vér erum allflestir, ef ekki allir, samdóma um, að það, sem einna mestan skaða hefir gjört allri landstjórn hjá oss og allri framkvæmd í stjórninni, er það, að landinu hefir verið stjórnað frá Kaupmannahöfn, en ekkert fullgilt at- kvæði verið að fá í landinu sjálfu. Það er auðskiljanlegt, að þar af leiðir hin mesta spilling: málin verða dauflega undirbúin, og snerpu- laust rekin; enginn treystir þeim úrskurði eða dómi, sem í landinu fæst, heldur venst á að leita annarra, og þegar það ber við, að úr- skurðurinn í Danmörku fellur svo, sem menn sízt ætluðu, þá hvetur það menn til að leita sem oftast þesskonar úrskurða, í þeirri von, að hlutur manns kunni að kastast upp úr lukkupottinum, þó óvænlega þyki á horfast. . . . Ef vér hefðum stjórn á íslandi, sem hefði úr- skurðarvald, þá gæti þau frumvörp, sem alþing samþykti, orðið sam- sumars að lögum . . . þá yrði uppástungur alþingis teknar til úr- greiðslu jafnóðum. Enda meðan á alþingi stæði, þá vissi menn með fullkominni vissu, hvort stjórnin vildi fallast á uppástungur þingsins eða ekki . . . Það er auðsætt, að frá vorri hlið væri mikið fyrir það gef- anda, að stjórn meb fullu úrskurbarvaldi væri í landinu sjálfu. . . . Eigi öll mál að fara til konungs úrskurðar, sem nú fara, eigi konungur að samþykkja öll frumvörp frá þinginu, áður en þau verði að lögum . . . . þá er ekki mikið unnið í bráð með breytingunni .... Það er eftirtektar vert, að hin fylsta og afimesta hugmynd um fyrirkomulag stjórnarinnar á íslandi er sú hin fyrsta, sem kom fram af hendi íslendinga á Þingvallafundinum 1850 ... Á f’ingvallafundin- um var áskorað, að menn vildu haga sambandi íslands við Danmörku samkvæmt hinum forna sáttmála, sem gjörður var við Noregskonung, og haga stjórnarlögun landsins eftir því, ab pví leyti sem samsvarar pörfum og ástandi vorra tíma. Þessa stjórnarlögun hugsa þeir sér á þann hátt, að jarl skyldi vera á íslandi, sem hefði myndugleika kon- ungs, þegar á þyrfti að halda, og er svo að skilja, sem pab skyldi vera á konungs valdi, hvort jarl pessi væri danskur mabur eba íslenzk- ur; þar með skyldi vera þrír ráðherrar á einum stað á landinu, og skyldu þeir allir vera íslendingar; enn fremur skyldi einn vera erinds- reki íslendinga í Danmörku, sem bæri mál þjóðarinnar fyrir konung og flytti aftur konungs erindi fyrir þjóðinni; en alþingi skyldi hafa löggjafarvald ásamt konungi. Þessar uppástungur hafa í sér hið full- komnasta fyrirkomulag á landstjórninni, og þær eru svo lagaðar, að ekki er öldungis nauðsynlegt, að framkvæma þær allar í einu, heldur má fylla þær upp smásaman, einungis að maður gjöri sér fullljósa þýð- ingu hvers atriðis og haldi fast við þann grundvöll, sem þetta fyrir- komulag byggist á. Það er aðalundirstaðan, að alþingi fái löggjafar- vald. Þar sem sagt er, að það skuli hafa löggjafarvald meb konungi> þá liggur næst að halda, að menn hafi hugsað sér, að konungur sjálf- ur skyldi staðfesta öll lög, eða að öll löggjafarmál skyldu ganga suður til Danmerkur; en þar sem aftur á móti er kveðið svo að orði, að jarl skyldi hafa myndugleika konungs, þegar á þyrfti að halda, þá er þar af auðsætt, að vel gæti hann og fengið þann myndugleika, að

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.