Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 38

Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 38
194 inni og þær ráðstafanir, sem hann þó áleit nauðsynlegt að gera til þess, að hún yrði samt ekki fullkomin nýlendustjórn, stóðu í nánu sambandi við alla skoðun hans á því, hvernig haga bæri sambandinu milli Danmerkur og íslands. Hann áleit, að ísland ætti að vera sfrjálst sambandsland« Danmerkur, en hvað hann átti við með því, munum vér leitast við að skýra í annarri grein, og þá jafnframt drepa á afstöðu hans til ýmsra af þeim vafa- spurningum, sem enn eru á dagskrá þjóðar vorrar. V. G. Bréf frá tengdamóður. Eftir HELENE LASSEN. Elsku Anna mín! Svo þú vilt, að ég komi og verði hjá þér, búi hjá ykkur Sigurði á heimilinu ykkar nýja, snotra og fámenna. Þú berð þá engan kvíðboga fyrir, að mitt gamla ellihró muni varpa skugga á alla ungu dagsbirtuna hjá ykkur? Að hærurnar mínar og angurværðin og rósemisdepran í svip mínum muni stinga of mjög i stúf við alt nýnæmið hjá ykkur, ykkar himingnæfandi hamingju og hjónasælu? Þú hristir höfuðið, lokkabjarta, og segir með sigurbrosi: »Á hjónasælu okkar getur ekkert í heiminum skygt né henni raskað. Og svo ert þú líka svo ljúf og elskuleg móðir —«. Þetta hefir þú svo þrásinnis sagt við mig. Ó, þú veizt ekki, kæra Anna mín, að einmitt ástuðlegustu mæð- urnar — þær geta ekki orðið hugþekkar tengdamæður, einmitt af því þær eru mæður með lífi og sál. Ég hefi lengi bjástrað við að ráða þessa gátu: tengdamæðurnar. Og nú hefi ég fundið ráðninguna. Ég hefi komist að þeirri niðurstöðu, að þær mæðurnar, sem minst hafa af ástúðinni og blíðunni, sem minst hugsa um hamingju barnanna sinna, — þær verða líklega beztu tengda- mæðumar! rú verður hissa, og ferð að spyija. Og ég ætla þá að reyna að svara þér. Við skulum hugsa okkur móður, sem á einn einkason, sem hún elskar meira en alt annað í heiminum. Hún ól hann í æskublóma lífs síns, og skeytti ekki hót um þrautirnar og þjáningarnar né allar vöku- næturnar; þvl ánægjan af að eiga hann var svo gagntakandi. Móður- sælan gjörði hana svo ríka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.