Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 42
ig8
xÞað segi ég ykkur skýrt og skorinort«, sagði prófessor L. við
embættisbræður sína, »að eigi sá dagur að koma yfir mig, að kven-
stúdentar fái innritunar-réttindi við háskólann hérna, þá tek ég saman
pjönkur rnínar og hypja mig burt samdægurs«.
Tveim árum síðar fengu fyrstu kvenstúdentarnir innritunar-réttindi,
en þó ekki leyfi til að taka próf.
»Það verð ég að segja ykkur, háttvirtu herrar«, sagði prófessor L ,
»að upp frá þeirri stundu, er fyrsti kvenstúdentinn tekur próf hérna,
þá get ég að minsta kosti ekki verið hér lengur«.
Ekki nema ári síðar tók fyrsti kvenstúdentinn próf í Halle með
fyrstu einkunn — einmitt hjá prófessor L. Og viku seinna stóð nafn
þessa kvenstúdents á trúlofunarspjaldi, sem prófessor L. sendi vildar-
vinum sínum og kunningjum í háskólabænum Halle.
V. G.
Alexander Baumgartner.
Hinn 5. sept. 1910 átti ísland á bak að sjá einum af sínum
beztu og einlægustu vinum, séra Alexander Baumgartner
S. J. Hann var heiðursfélagi hins ísl. Bókmentafélags og einn
hinn andríkasti og lærðasti ritsnillingur á þýzka tungu.
Al. Baumgartner var fæddur 27. júní 1841 í St. Gallen á Sviss-
landi. Faðir hans var þá stjórnandi (»Landamann«) þess fylkis.
Foreldrar hans voru sitt hvorrar trúar, móðirin mótmælandi, en
faðirinn kaþólskur. Var hann snemma til náms settur, fyrst heima
fyrir hjá Benediktínum í Einsiedeln, en 1858—60 stundaði hann
nám við Jesúítaskólann í Feldkirch (í Austurríki) og tók þar stú-
dentspróf með ágætiseinkunn og sama árið gekk hann í Jesúíta-
félagið. 1862 tók hann að stunda heimspeki í Feldkirk, og voru
þar kennararnir og meginið af nemendunum ítalskir, enda lærði
hann þar ítölsku svo vel, að hann var hérumbil jafnleikinn í henni
og móðurmáli sínu. 1865 fór hann til Múnster til að stunda
fornbókmentir Grikkja og Rómverja, en hvarf brátt aftur að
heimspekisnáminu og stundaði það í 2 ár við Jesúítaskólann í
Maria-Laach (á Pýzkalandi). 1867—69 var hann kennari við Feld-
kirchskólann, en 1869—74 stundaði hann gubfræðisnám bæði á
Pýzkalandi, Englandi og Hollandi og tók því næst prestvígslu.