Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 43

Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 43
i99 1874 tók Baumgartner að fást viö ritstörf af kappi og hélt því fram til dauðadags. I 36 ár var hann einn af aðalritstjórum Jesúíta-tímaritsins »Stimmen aus Maria-Laach«, sem er eitt af þeim tímaritum, er mest álit hafa á þýzkalandi. I þeim 72 þykku bind- um, sem út komu af því á þessu tímabili, liggur heljarmikil vinna eftir Baumgartner. Og þar á ísland, íslenzkar bókmentir og saga og efni þess yfirleitt, margt fagurt minningarblaðið eftir hann, er ALEXANDER BAUMGARTNER. seinna var safnað saman í hans fjöllesnu og ágætu bók: -»Island und die 17aröer«, sem komið hefir út í þremur útgáfum og stór- um aukið þekkingu manna á Islandi. Jafnframt því að vinna að ritstjórninni á »Stimmen . . .« varð B. jafnaðarlega að skrifa greinar í mörg önnur tímarit, og nemur tala þeirra að minsta kosti heilum tug. þangað til 1899 bjó hann til skiftis í ýmsum löndum, eftir því sem bezt hagaði fyrir ritstörf hans í hvert skifti; hann bjó þannig alllengi í greifahöllinni Tervueren í nánd við Bryssel, í hinni ljómandi ensku stofnun Stonyhurst hjá Whalley, á Hollandi, Pýzka-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.