Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 49

Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 49
205 öndverðu gjörst sambandsland Noregs, svo sem einn hluti af Nor- egskonungs ríki, en sjálfum sér ráðandi, og einungis háður kon- ungi, og á sama hátt hefði sambandi þess við Danmörku verið varið. Pað hefði að vísu verið einn hluti Noregsveldis og síðar Danaveldis, en aldrei partur úr Noregi eða Danmörku (NF. XVI, i—2, 91—92, 102; XXV, 106). Pegar konungur hafi slept einveldinu, verði með nýjum sdttmdla að ákveða, hvernig sambandinu skuli hagað framvegis, og það samband verði að vera bygt á frjdlsu samþykki hlutaðeigenda (NF. XII, 120—21). Eigi ríkisþing Dana eitt að skera úr þessu, njóti íslendingar ekki jafnréttis við aðra þegna konungs, heldur séu þeir gerðir að »þegnum þegnanna«. En þó að Islendingar vilji ekki gefa jáyrði sitt til þess, að ísland sé innlimað Danmörku, þá muni þeir »vera á því, að taka þátt í einhverri alríkistilhögun, áþekkri þeirri, sem stjórnin hafi síðan leitast við að koma á í hinum ríkishlutunum« (NF. XVI, 102). En þeir verði að krefjast að fá fult samþyktar- atkvæði um þá tilhögun og innlenda löggjöf og stjórn í sínum sérstöku málum. Pegar ókleift reyndist að fá Islendinga til að samþykkja inn- limunarstefnuna, urðu Datiir að slaka nokkuð á klónni og tóku nú að hallast að nýlendustefnu, en hurfu þó ekki nema að hálfu leyti frá innlimunarstefnu sinni. II. NÝLENDUSAMBAND. Eað nýlendusamband, sem Dana- stjórn otaði að íslendingum, var þannig vaxið, að alþingi átti að fá löggjafarvald í vissum ákveðnum málum, eftir því sem ríkis- þingið afskamtaði því, og sem náðargjöf frá því. En í öllum al- mennum málum átti ríkisþingið eitt að hafa löggjöf íslands á hendi, og lögin frá því skyldi birta á íslandi bæði á dönsku og íslenzku. Einn af hinum dönsku ráðherrum skyldi jafnframt vera ráðherra fyrir ísland, en hið æðsta vald á íslandi skyldi á ábyrgð ráðherrans falið landstjóra, er konungur skipaði. Ráðherrann átti þó aðeins að hafa ábyrgð fyrir ríkisþinginu, en alþingi var heimilt að senda því umsókn um að koma fram ábyrgð á hendur honum, ef því fyndist ástæða til, en þó undir ríkisþinginu komið, hvort sú umsókn yrði tekin til greina eða ekki (NF. XXVII, 17). Einnig gegn þessari stefnu barðist Jón Sigurðsson af alefli. Hann segir, að ef hún yrði ofan á, þá »væri landsréttindi Islands eydd og að engu gjörð. Landið yrði þá nokkurskonar dönsk nýlenda að hálfu, og að hálfu innlimað Danmörku, undir stjórn H

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.