Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 58

Eimreiðin - 01.09.1911, Qupperneq 58
214 stjórn sameiginlegra mála, og um fjártillag til þeirra og byrðir frá ís- lands hálfu« (Andv. I, 62—63). Vér vonum, að þessi gögn sýni og sanni, að það var einmitt veldissamband, sem Jón Sigurðsson hallaðist mest að; og hanti áleit, að samband íslands við Noreg eftir Gamla-sáttmála hefði einmitt verið veldissamband, því Island hefði verið »einn hluti Noregsveldis«. Að vísu hefði sambandið þá aðeins verið við kon- unginn, en honum var ljóst, að svo gæti sambandinu ekki orðið hagað nú, þegar konungsstjórnin væri orðin þingbundin og vald konungs því hverfandi í samanburði við það, sem það var fyr á öldum. fá gat konungur farið einn með hin sameiginlegu mál, en nú gat hanu það ekki, þar sem hann hafði ekki heimild til að framkvæma neitt nema með undirskrift og samþykki ráðherra, er bar ábyrgð fyrir þjóðþingi. þess vegna áleit hann, að ekki dygði að byggja á Gamla-sáttmála í sinni fornu mynd, heldur yrði að gera nýjan sáttmála í líkum anda, en þó með þeirri tilbreyt- ing, sem ástand vorra tíma krefði (Andvari I, 27). Og með því vald sambandsþjóðarinnar væri nú ekki lengur í höndum konungs- ins eins, heldur í höndum ábyrgðarstjórnar og fulltrúaþings, þá yrði að gera hinn nýja sáttmála og hið nýja samband við þjóðina sjálfa eða fulltrúa hennar með frjálsu samkomulagi og fullum atkvæðisrétti beggja þeirra veldishluta, er í sambandinu ættu að vera. Með öðrum orðum bygt á fullveldi beggja sambands- þjóðanna við samningu hins nýja sáttmála. Pá yrði ísland sfrjálst sambandsland«. En um fyrirkomulag á stjórn og löggjöf í hinum sérstöku málum ættu Islendingar við enga aðra að eiga en kon- unginn einn. Pað kæmi sambandsþjóð þeirra ekkert við, þegar einu sinni væri búið að ákveða takmörkin milli sérstaklegra og sameiginlegra mála. IV. MÁLEFNASAMBAND. Svo kallast samband milli tveggja ríkja, sem hafa viss ákveðin mál sameiginleg, en eru þó bæði fullvalda, hvort fyrir sig, nema að því leyti sem þau hafa sjálf takmarkað og bundið fullveldi sitt með hinum sameiginlega sambandssáttmála. Munurinn á málefnasambandi og veldissam- bandi, stofnuðu með frjálsu samþykki, verður þá í rauninni sá einn, að í fyrra sambandinu eru báðir sambandsaðilar »ríki«, en í hinu síðara ekki nema annar þeirra »ríki«, en hinn aðeins »ríkishluti« eða »veldishluti«, er í sameiningu við ríkið myndar »veldi«. Samkvæmt 1. gr. í frumvarpi Millilandanefndarinnar um sam-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.