Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 67

Eimreiðin - 01.09.1911, Síða 67
223 stjórnmálamenn verða að vera, ef þeir eiga að geta haft nokkra von um, að leiða mái sitt til sigurs. Hann var stefnufastur, en þó laus við allan þverhöfðaskap, og kunni sér jafnan svo mikið hóf í kröfum sínum, að hann fór því tiær aldrei lengra, en fært var. En hann gat líka verið samningafús, þegar hann áleit, að eitthvað áynnist með tilslökun frá sinni hálfu, er hrundið gæti málunum áfram, og gagnlegt gæti verið fyrir Island. Og sízt kom honum til hugar, þegar gengið var að þeim kröfum, sem hann einu sinni hafði gert, að hækka þær þá þegar jafnharðan, svo að ekkert samkomulag gæti fengist. Hann hafði gagn íslands eitt fyrir augum. V. G. Steingrímur áttræður. Það er ekki siður að tilgreina föðurnafn konunga; þeir þurfa þess ekki við, til þess menn kannist við þá. — Skáldkonungarnir ekki heldur. Þegar vér íslendingar tölum um Steingrím, þá vita allir, að átt er við Steingrím Tnorsteinsson Svo djúpt hefir hann grafið nafn sitt inn í hug og hjarta þjóðarinnar, að hann á þar konungstign og kóngsríki í hverri sál. Hann varð áttrœbur ip. maí í ár, þessi skáldjöfur okkar. Eimreiðin kemur svo sjaldan út, að hún gat ekki niinst hans þann dag. Hún varð því að vera annaðhvort dálítið á undan eða -á eftir. En hitt var henni allatíma ljóst, að ekkert íslenzkt tímarit, sem gæta vildi skyldu sinnar. gæti kinnroðalaust lokið við þennan árgang sinn, án þess að minnast þessa áttræðisafmælis. Því virðing vor fyrir íslenzkum bók- mentum krefst þess blátt áfram, að ekki sé gengið þegjandi fram hjá áttræðisafmæli manns, sem lagt hefir annan eins skerf til þeirra, verið önnur eins prýði fyrir þær og Steingrímur Thorsteinsson hefir verið. Því svo margháttuð hefir bókmentastarfsemi Steingríms verið, að ekki veitti af að skrifa um hann heila bók, ef gera ætti honum full skil. Fyrst verður mönnum náttúrlega fyrir að minnast frumkveðnu kvæðanna, sem hann hefir sungið inn í þjóðina, og veitt hafa henni svo mikla unun. En hann hefir líka verið óþreytandi í að veita er- lendum hugmyndaauði inn í landið með þýðingum sínum, bæði í bundnu og óbundnu máli Það er óþarfi að telja þær upp allar saman, nóg að geta þess, að hann jafnan hefir valið hið bezta úr heimsbókmentun- um og gróðursett það hjá oss í svo snildarlegum búningi, að allir hafa orðið að að dást, bæði efninu og búningnum. Fegurðartilfinningin svo 15*

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.