Eimreiðin - 01.01.1913, Qupperneq 20
20
Konan á að leita úrskurðar læknis um jafnmikilsvert atriði, sem
það er, að svifta barnið brjósti, og fylgja áliti hans í því efni.1
5. Hvernig er fyrirkomulag máltíða haganlegast
og bezt?
Margar konur hafa eigi börn sín á brjósti vegna tímaeyðsl-
unnar, sem því er samfara; konur, sem eiga mörg börn og hafa
stór heimili, eiga oft erfiðum störfum að gegna, sérstaklega sveita-
konur um sláttinn og sjávarkonurnar á vertíðinni; mæður óskil-
getinna barna eiga hér einnig erfitt uppdráttar, ef þær eru í vist,
sem oftast er. Pað ætti þó að vera siðferðisleg skylda hús-
bænda, að hvetja konur sínar og hjú til þessa, því hagnaðurinn
er svo auðsær, eins og á hefur verið minst.
Tíminn er dýr, og því ríður á að spara hann, og koma starf-
inu svo haganlega fyrir, að það hafi sem minsta tímaeyðslu í för
með sér, en geri þó fult gagn. Hér skal því bent á ráð, er að
þessu miða.
Það hefur verið siður, að konur þær, er haft hafa börn á
brjósti, hafi gefið þeim að sjúga á 2 tíma fresti eða 12 sinnum
á sólarhring. Petta er algjör óhæfa, því að barnið þarf 3 tíma
hvíld milli máltíða, til þess að geta melt fæðuna, svo að með
þessu lagi offyllist magi þess; barnið verður óvært og rellið, af
því að það getur ekki torgað matnum. Nafnfrægir franskir og
þýzkir barnalæknar halda því fram, að nægilegt sé að gefa börn-
unum að sjúga á 4 tíma fresti, eða 6 sinnum á sólarhring, og
þetta fyrirkomulag virðist haganlegast og bezt í alla staði.
Engin kona hér á landi mun eiga svo annríkt, að hún geti
eigi int þetta starf af hendi, ef hún hefur vilja á því.
6. Hvaða ástæður eru til þess, að konur hafi ekki
börn á brjósti?
Hér á landi hefur sú skoðun verið algeng, að ofsafullar kon-
ur og skapvargar ættu eigi að gefa börnum að sjúga sig, né heldur
þunglyndar og fúllyndar konur; líklega á þetta rót sína að rekja
til vessakenningarinnar, af því að þessar konur voru álitnar hafa
1 i pottur af móðurmjólk hefur í sér 700 hitaeiningar (kalóríur); 50 hitaein-
ingar þarf barnið á hvert pund á 1, ársfjórð.